Lagði upp sigurmarkið í Noregi

Tryggvi Hrafn Haraldsson
Tryggvi Hrafn Haraldsson Ljósmynd/Skagafréttir

Tryggvi Hrafn Haraldsson lagði upp mikilvægt sigurmark Lilleström í norsku B-deildinni í dag er liðið vann 1:0-sigur á Jerv.

Tryggvi var í byrjunarliði heimamanna og spilaði fyrstu 88 mínútur leiksins en sigurmarkið lagði hann upp strax á áttundu mínútu. Arnór Smárason og Björn Bergmann Sigurðarson voru ekki í leikmannahóp Lilleström.

Með sigrinum er Lilleström með 52 stig í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Tromsø og fimm stigum á undan Sogndal í þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert