Ég held að ég hafi ekki það mikil völd Atli Arason skrifar 15. janúar 2021 22:46 Hörður Axel telur sig ekki hafa haft áhrif á því að æfinga- og keppnisbanni hafi verið aflétt. Hann er þó einkar þakklátur því að vera kominn út á völl aftur. Vísir/Daniel Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var yfir sig ánægður að vera loksins kominn út á völlinn aftur. Þá var hann eðlilega mjög ánægður með stórsigur sinna manna í kvöld en Keflavík vann Þór Þorláksöfn með 28 stiga mun, 115-87. „Ég er glaður, mjög glaður að fá að keppa og fá að spila körfubolta það er svona það helsta sem maður tekur út úr þessum leik. Auðvitað er maður ánægður að vinna en fyrst og fremst bara að fá að spila og gera það sem maður hefur lifað fyrir alla sína tíð í rauninni,” sagði Hörður í viðtali eftir leik. Hörður var búinn að tjá sig um það á samskiptamiðlum hvað æfingar- og keppnisbannið hafi haft slæm áhrif á hann og mögulega alla framtíðar afreksíþróttamenn. Aðspurður telur hann sig ekki hafa haft einhver áhrif í því að keppnisbanninu var loksins aflétt. „Nei ég held ég hafi nú ekki það mikil völd að ég hafi eitthvað um það að segja,” segir Hörður og hlær áður en hann bætir við: „En á sama tíma þá var þetta eitthvað sem lá mér á hjarta og eitthvað sem mér fannst ég þurfa að koma frá mér.” Afreksíþróttir. Ég hef ekki talað um opinberleg málefni í langan tíma en núna finnst mér, ég vera knúinn til þess....Posted by Hörður Axel Vilhjálmsson on Tuesday, December 1, 2020 Keflavík vann eins og áður sagði öruggan 28 stiga sigur á Þór á heimavelli í kvöld en þeir voru þó lengi að hrista gestina af sér. „Við hertum varnarleikinn mikið í seinni hálfleik og lokuðum á þessar auðveldu körfur sem þeir voru að fá. Sóknarlega vorum við að dreifa boltanum vel. Við vorum að finna glufur betur í seinni hálfleik þar sem við vorum kannski aðeins þolinmóðari í staðinn fyrir að reyna að negla boltanum beint inn á Dom og bíða eftir að hann myndi gera eitthvað. Við vorum að hreyfa boltann og þannig fengu allir bita af kökunni,“ svaraði Hörður aðspurður hvers vegna Keflavík sigraði í kvöld. Hörður vil fyrst og fremst fá að spila tímabilið áður en hann gefur eitthvað út um markmið Keflavíkur fyrir árið. „Markmiðið er bara að klára tímabilið. Ég held það sé markmið allra liða, að fá að spila bara. Það er langt í að fara að spá í einhverjum langtímamarkmiðum núna. Það er bara einn leikur búinn. Við erum ánægðir með þar sem við erum í dag en við fengum að mæla okkur aðeins við annað lið sem er eitthvað sem við höfum ekki fengið að gera í marga mánuði. Eftir þetta er ég nokkuð sáttur en ég vil samt fá að byggja meira ofan á þetta,” sagði Hörður Axel Vilhjálmsson að lokum. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Körfubolti Íslenski körfuboltinn Dominos-deild karla Keflavík ÍF Tengdar fréttir Leik lokið: Keflavík - Þór Þ. 115-87 | Stórsigur hjá heimamönnum Keflavík vann stórsigur á Þór Þorlákshöfn er Dominos-deild karla í körfubolta fór aftur af stað eftir hlé vegna kórónufaraldursins. Lokatölur í Keflavík 115-87 heimamönnum í vil. 15. janúar 2021 22:00 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrautinni Íslenski boltinn Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Fleiri fréttir „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira
„Ég er glaður, mjög glaður að fá að keppa og fá að spila körfubolta það er svona það helsta sem maður tekur út úr þessum leik. Auðvitað er maður ánægður að vinna en fyrst og fremst bara að fá að spila og gera það sem maður hefur lifað fyrir alla sína tíð í rauninni,” sagði Hörður í viðtali eftir leik. Hörður var búinn að tjá sig um það á samskiptamiðlum hvað æfingar- og keppnisbannið hafi haft slæm áhrif á hann og mögulega alla framtíðar afreksíþróttamenn. Aðspurður telur hann sig ekki hafa haft einhver áhrif í því að keppnisbanninu var loksins aflétt. „Nei ég held ég hafi nú ekki það mikil völd að ég hafi eitthvað um það að segja,” segir Hörður og hlær áður en hann bætir við: „En á sama tíma þá var þetta eitthvað sem lá mér á hjarta og eitthvað sem mér fannst ég þurfa að koma frá mér.” Afreksíþróttir. Ég hef ekki talað um opinberleg málefni í langan tíma en núna finnst mér, ég vera knúinn til þess....Posted by Hörður Axel Vilhjálmsson on Tuesday, December 1, 2020 Keflavík vann eins og áður sagði öruggan 28 stiga sigur á Þór á heimavelli í kvöld en þeir voru þó lengi að hrista gestina af sér. „Við hertum varnarleikinn mikið í seinni hálfleik og lokuðum á þessar auðveldu körfur sem þeir voru að fá. Sóknarlega vorum við að dreifa boltanum vel. Við vorum að finna glufur betur í seinni hálfleik þar sem við vorum kannski aðeins þolinmóðari í staðinn fyrir að reyna að negla boltanum beint inn á Dom og bíða eftir að hann myndi gera eitthvað. Við vorum að hreyfa boltann og þannig fengu allir bita af kökunni,“ svaraði Hörður aðspurður hvers vegna Keflavík sigraði í kvöld. Hörður vil fyrst og fremst fá að spila tímabilið áður en hann gefur eitthvað út um markmið Keflavíkur fyrir árið. „Markmiðið er bara að klára tímabilið. Ég held það sé markmið allra liða, að fá að spila bara. Það er langt í að fara að spá í einhverjum langtímamarkmiðum núna. Það er bara einn leikur búinn. Við erum ánægðir með þar sem við erum í dag en við fengum að mæla okkur aðeins við annað lið sem er eitthvað sem við höfum ekki fengið að gera í marga mánuði. Eftir þetta er ég nokkuð sáttur en ég vil samt fá að byggja meira ofan á þetta,” sagði Hörður Axel Vilhjálmsson að lokum. Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Dominos-deild karla Keflavík ÍF Tengdar fréttir Leik lokið: Keflavík - Þór Þ. 115-87 | Stórsigur hjá heimamönnum Keflavík vann stórsigur á Þór Þorlákshöfn er Dominos-deild karla í körfubolta fór aftur af stað eftir hlé vegna kórónufaraldursins. Lokatölur í Keflavík 115-87 heimamönnum í vil. 15. janúar 2021 22:00 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrautinni Íslenski boltinn Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Fleiri fréttir „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira
Leik lokið: Keflavík - Þór Þ. 115-87 | Stórsigur hjá heimamönnum Keflavík vann stórsigur á Þór Þorlákshöfn er Dominos-deild karla í körfubolta fór aftur af stað eftir hlé vegna kórónufaraldursins. Lokatölur í Keflavík 115-87 heimamönnum í vil. 15. janúar 2021 22:00