Skipverjum létt að málinu sé lokið en furða sig á refsingunni Vésteinn Örn Pétursson skrifar 16. janúar 2021 09:30 Frá komu Júlíusar Geirmundssonar í Ísafjarðarhöfn í október síðastliðnum. Hafþór Skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni sem smituðust af Covid-19 í veiðiferð um borð í skipinu er létt að máli vegna veikinda þeirra sé lokið en óvissan hefur verið þeim þungbær. Einhverjir þeirra séu þó undrandi á dómi skipstjóra togarans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða.
Tuttugu og tveir skipverjar af tuttugu og fimm sýktust af kórónuveirunni um borð í frystitogaranum í október síðastliðnum. Skipstjórinn, Sveinn Geir Arnarsson, játaði sök þegar mál gegn honum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða á fimmtudag. Var honum gert að greiða 750 þúsund króna sekt og sæta sviptingu skipstjórnarréttinda í fjóra mánuði. Sveinn var ákærður fyrir að brjóta gegn annarri málsgrein 34. greinar sjómannalaga, en þar segir: „Ef ástæða er til að ætla að skipverji sé haldinn sjúkdómi sem hætta stafar af fyrir aðra menn á skipinu skal skipstjóri láta flytja sjúklinginn í land ef eigi reynist unnt að verjast smithættu á skipinu.“ „Að því gefnu að upplýsingar félagsins séu réttar er allur vafi tekinn af varðandi réttarstöðu þeirra skipverja sem staðið hafa í veikindum í veiðiferðinni og í kjölfar hennar, en útgerð er ábyrg fyrir ákvörðunum skipstjóra valdist skaði af. Heilsufar flestra skipverja hefur sem betur fer verið að þokast til betri vegar, en þeir sem enn glíma við veikindi eru nú í vissu um að þeir haldi launum til jafns við það sem þeir hefðu haft væru þeir vinnufærir og heilir heilsu,“ segir í yfirlýsingu VerkVest. Skipverjar undrandi á refsingunni Þá segir í yfirlýsingu að skipverjar sem hafi haft samband við verkalýðsfélagið séu undrandi á að hafa gengið í gegnum tímabil þar sem þeir töldu lífi sínu og heilsu ógnað, „og sjá svo að refsingin sem skipstjórinn er dæmdur til sé ekki ólík refsingu fyrir samlokustuld í Krónunni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingunni er einnig tæpt á því að sú þjáning sem skipstjórinn hefur orðið fyrir „vegna sinna mistaka, ekki ásetningsbrots, heldur mistaka og dómgreindarleysis,“ sé minna í sviðsljósinu. Telur verkalýðsfélagið að í málinu hafi allir tapað og er það von félagsins að íslenskir sjómenn þurfi aldrei að upplifa annað slíkt mál um ókomna tíð. „Nú er liðið vel á þriðja mánuð frá því þessari örlagaríku veiðiferð lauk og þrátt fyrir batnandi heilsu flestra skipverja á það ekki við um alla, en of snemmt er að segja til um hvort allir nái fullri heilsu á ný. Allir sem að málinu koma gera sitt besta til að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur, en ekki er hægt að líta fram hjá því að hvorki er um slys né veikindi af eðlilegum orsökum að ræða.“ Þá segir að rangar ákvarðanir sem teknar hafi verið hafi valdið skipverjum alvarlegum skaða. Samfélagslegur kostnaður vegna þess sé nú þegar orðinn gríðarlegur, sem og fjárhagsskaði útgerðarinnar. Álitshnekkir fyrir svæðið verði ekki metnir til fjár.
Hópsmit á Júlíusi Geirmundssyni Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Dómsmál Ísafjarðarbær Sjávarútvegur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira