Dramatískur sigur Selfyssinga fyrir vestan Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2021 16:00 Martin skoraði og lagði upp í mikilvægum sigri sunnlendinga. sunnlenska.is/Guðmundur Karl Selfoss lagði Vestra 2-1 í eina leik dagsins í Lengjudeild karla í fótbolta á Olís-vellinum á Ísafirði. Sigurmark gestanna var skorað í lok uppbótartíma.
Um er að ræða annan leik fyrrum landsliðsþjálfara kvenna, Jóns Þórs Haukssonar, við stjórnvölin hjá Vestramönnum en sá fyrsti vannst gegn Þrótti Reykjavík. Vestri var fyrir leik í 7. sæti deildarinnar með 19 stig og gat með sigri stokkið upp að hlið Kórdrengja í 3. sæti. Selfoss er aftur á móti í mikilli fallbaráttu, með níu stig í 10. sæti, tveimur stigum frá fallsæti. Markalaust var í hálfleik en Pétur Bjarnason kom Vestra í forystu eftir aðeins sex mínútna leik í síðari hálfleik þegar hann skallaði inn hornspyrnu Benedikts V. Warén. Aðeins fimm mínútum síðar var enski framherjinn Gary Martin felldur af Sergine Fall innan teigs Vestra. Vítaspyrna var dæmd og Martin steig sjálfur á punktinn. Brenton Muhamed, markvörður Vestra, varði spyrnu hans en frákastið féll fyrir fætur Englendingsins sem skoraði og jafnaði leikinn. Allt virtist stefna í jafntefli en á lokamínútu uppbótartíma átti Martin gott samspil við Þorlák Breka Baxter áður en sá enski gaf boltann á Valdimar Jóhannsson sem skoraði af stuttu færi og tryggði Selfossi þannig 2-1 sigur á ögurstundu. Um er að ræða aðeins þriðja sigur Selfoss í sumar, og þann fyrsta í tæpan mánuð, síðan liðið vann sigurlaust botnlið Víkings frá Ólafsvík 5-3 þann 26. júní. Með sigrinum kemst Selfoss upp í tólf stig, áfram í 10. sætinu, fjórum stigum frá Aftureldingu sem er sætinu ofar. Þá slítar Selfyssingar sig lítillega frá Þrótturum sem eru í efra fallsætinu með sjö stig. Vestri er sem fyrr með 19 stig í 7. sæti.
Lengjudeild karla UMF Selfoss Vestri Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Golf Fleiri fréttir Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Sjá meira