Miðflokkurinn svarar frumvarpi um afglæpavæðingu neysluskammta Sunna Sæmundsdóttir skrifar 10. maí 2021 14:54 Allir þingmenn Miðflokksins standa að baki tillögunni. vísir/Sigurjón Þingmenn Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um viðspyrnu við vímuefnavanda og fíkn. Málið má kalla andsvar þeirra við frumvarpi heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta sem flokkurinn hefur verið mótfallinn.
Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins, er flutningsmaður tillögunnar en hana styðja allir þingmenn flokksins. Í tillögunni segir: „Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að leggja fram áætlun um að öllum sem glíma við fíkn hvers konar eða vímuefnavanda standi til boða viðeigandi meðferð.“ Verði tillagan samþykkt ber heilbrigðisráðherra að leggja slíka áætlun fram fyrir 1. janúar 2022. Í greinargerð er vísað í langa biðlista eftir meðferðarúrræðum og þá segir að frumvarp Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, um aflglæpavæðingu neysluskammta sé hvorki lausn á vímuefnavanda né hluti af lausninni. Vitnað er í umsögn Læknafélags Íslands þar sem félagið leggur áherslu á að efla eigi meðferðarúrræði fyrir þá sem berjast við fíkn. Í greinargerðinni segir jafnframt að afskipti lögregluyfirvalda vegna afbrota, nytjastuldar og eignaspjalla megi að einhverju leyti rekja til fólks sem hafi á þeim tíma verið undir áhrifum áfengis eða vímuefna. „Það má því segja að þjóðfélagið, löggæslan, heilbrigðiskerfið og félagsleg úrræði beri umtalsverðan kostnað af þeirri skaðsemi sem áfengi og vímuefni hafa á samfélagið. Kostnaður ríkisins er mun meiri við að hafa sjúkt fólk annaðhvort á stofnunum eða á vergangi en að hjálpa þeim sem eftir hjálpinni sækjast án tafar og stuðla þar með að fullri þátttöku þeirra í samfélaginu sem heilbrigðra einstaklinga.“
Alþingi Fíkn Miðflokkurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira