Ríkisstjórnin sökuð um að hóta þingmönnum og jafnvel kúga þá Samúel Karl Ólason skrifar 20. janúar 2022 16:45 Frá þinginu í síðustu viku þegar Boris Johnson baðst afsökunar á samkvæminu. AP/Jessica Taylor Þingmenn Íhaldsflokks Englands, sem vilja velta Boris Johnson, forsætisráðherra, úr sessi sem leiðtogi flokksins, hafa orðið fyrir hótunum frá meðlimum úr ríkisstjórn Bretlands. Þetta segir einn þingmaður flokksins og ráðleggur hann flokksbræðrum sínum og systrum sem hafa orðið fyrir kúgunum að leita til lögreglunnar.
William Wragg, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar breska þingsins, sagði í dag að það væru ekki bara þingmenn sem hafa lýst því yfir að þeir vilji Johnson úr embætti heldur einnig þingmenn Íhaldsflokksins sem taldir eru vilja Boris á brott. Meðal annars hafi þeim verið hótað því að dregið yrði úr fjárútlátum til kjördæma þeirra. Það kallaði hann kúgun og lagði til að þeir þingmenn sem hafi orðið fyrir þeim leituðu til lögreglunnar. Sjá einnig: Samflokksmenn Johnson sagðir leggja drög að hallarbyltingu Í frétt Sky News segir að Christian Wakeford, sem fór í vikunni yfir til Verkamannaflokksins, sagði að sér hefði verið hótað vegna ákvörðunar sinnar og meðal annars sagt að skólar í kjördæmi hans fengu ekki ákveðna fjárhagsaðstoð vegna skólamáltíða. Þá hafa fregnir borist af því að einn þingmaður sem vill forsætisráðherrann úr embætti hafi lent í rifrildi við háttsetta aðila í Íhaldsflokknum sem hafi hótað því að breyta kjördæmi hans til að losna við hann af þingi. Johnson er í miklum vandræðum vegna samkvæmis sem haldið var á Downingstræti í maí 2020, þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi. Johnson hefur meðal annars verið sakaður um að ljúga að þinginu vegna samkvæmisins þegar hann sagðist ekki hafa vitað neitt um það annað en að það ætti að vera vinnuviðburður. Þá hafa fregnir borist af því að þingmenn Íhaldsflokksins séu að vinna að hallarbyltingu. Ef minnst 54 þingmenn flokksins senda formlega yfirlýsingu um vantraust til þar til gerðrar nefndar innan Íhaldsflokksins, hefst sjálfkrafa ný barátta um að leiða flokkinn. Sjálfur heitir Boris því að hann sé ekki á förum. Hann muni berjast gegn tilraunum til að velta honum úr sessi.
Bretland Kosningar í Bretlandi Tengdar fréttir Enn uppljóstrað um djamm í Downingsstræti Starfsmenn Downingsstrætis 10, skrifstofu forsætisráðherra Breta hafa nú enn og aftur verið sakaðir um veisluhöld á sama tíma og almenningi var gert að fara eftir ströngum sóttvarnareglum sem bönnuðu allt slíkt. 14. janúar 2022 06:57 Boris á hálum ís Staða Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þykir nokkuð óviss og eru þingmenn Íhaldsflokksins byrjaðir að kalla opinberlega eftir því að hann láti af embætti. Það er í kjölfar þess að í ljós kom að hann sótti garðveislu við Downingstræti tíu í maí 2020, þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. 12. janúar 2022 22:18 Boris Johnson biðst afsökunar á veisluhöldum í samkomubanni Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, baðst í dag afsökunar á að hafa sótt garðveislu sem fram fór í garði Downingstrætis 10 í maí 2020 þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. Stjórnarandstæðingar hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans vegna málsins. 12. janúar 2022 13:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Fleiri löggur á leiðinni Innlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Fleiri fréttir Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Sjá meira
Enn uppljóstrað um djamm í Downingsstræti Starfsmenn Downingsstrætis 10, skrifstofu forsætisráðherra Breta hafa nú enn og aftur verið sakaðir um veisluhöld á sama tíma og almenningi var gert að fara eftir ströngum sóttvarnareglum sem bönnuðu allt slíkt. 14. janúar 2022 06:57
Boris á hálum ís Staða Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þykir nokkuð óviss og eru þingmenn Íhaldsflokksins byrjaðir að kalla opinberlega eftir því að hann láti af embætti. Það er í kjölfar þess að í ljós kom að hann sótti garðveislu við Downingstræti tíu í maí 2020, þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. 12. janúar 2022 22:18
Boris Johnson biðst afsökunar á veisluhöldum í samkomubanni Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, baðst í dag afsökunar á að hafa sótt garðveislu sem fram fór í garði Downingstrætis 10 í maí 2020 þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. Stjórnarandstæðingar hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans vegna málsins. 12. janúar 2022 13:15