Hvert einasta mark Alexis Sanchez kostaði United meira en milljarð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2020 14:30 Alexis Sanchez fékk ótrúleg laun hjá Manchester United en brást félaginu algjörlega inn á vellinum. Getty/Matthew Peters
Það er erfitt að finna verri félagsskipti í sögu Manchester United en þegar félagið fékk til sín Alexis Sanchez fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Manchester United taldi sig vera að fá stórstjörnu framtíðarinnar þegar liðið skipti við Arsenal á Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan í janúar 2018. Alexis Sanchez hafði farið á kostum í mörg ár með Arsenal liðinu í ensku úrvalsdeildinni og var ein af stærstu stjörnum ensku úrvalsdeildarinnar. Hann fann sig aftur á móti aldrei í búningi Manchester United, glímdi við meiðsli og var mjög ósannfærandi þegar hann spilaði. Alexis Sanchez gekk illa að vinna sér sæti í liðinu og var á endanum ýtt til hliðar. Hann fór síðan á láni til Internazionale sem fékk hann síðan á frjálsri sölu í dag. Þessi mistök að fá Alexis Sanchez voru allt annað en ódýr fyrir Manchester United eins og sést vel hér fyrir neðan. Alexis Sanchez's United career:Per goal: £6.12MPer assist: £3.4MPer game: £680K pic.twitter.com/RMkcbqnYzo— B/R Football (@brfootball) August 6, 2020 Alexis Sanchez fékk nefnilega fjögurra og hálfs árs samning við Manchester United og var að fá 400 þúsund pund í laun á viku sem gerir meira en 71 milljón íslenskra króna á sjö daga fresti. Alexis Sanchez lék alls 45 leiki fyrir Manchester United í öllum keppnum og skoraði í þeim fimm mörk. Hann var með 3 mörk í 32 leik í ensku úrvalsdeildinni. Bleacher Report lék sér að því að taka saman hversu dýrt hvert mark, hver stoðsending og hver leikur hjá Alexis Sanchez var fyrir United. Manchester United borgaði í raun 6,12 milljónir punda fyrir hvert mark, 3,4 milljónir punda fyrir hverja stoðsendingu og 680 þúsund pund fyrir hvern spilaðan leik. Hver einasti leikur Alexis Sanchez kostaði United því 121 milljón íslenska króna, hver stoðsending kostaði 606 milljónir króna og hvert mark hans fyrir Manchester United kostaði félagið milljarð og 91 milljón betur. Alexis Sanchez - PL careerFor Arsenal:60 goals in 122 PL apps24 PL goals in 16-17 (only Kane & Lukaku scored more)25 PL assists - only Ozil (39) had more for Arsenal whilst he was thereFor Man Utd:3 goals, 6 assists in 32 PL appsNo goals in final 14 PL apps (5 starts) pic.twitter.com/OQ5SMopG2i— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) August 6, 2020
Enski boltinn Mest lesið „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Handbolti Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Fyrrverandi hirti fernu-boltann Enski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport „Voru greinilega ósáttir við þessa hlaupandi konu“ Sport Sjáðu snilldarsnúning Hilmars Árna sem ruglaði Valsmenn í ríminu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guardiola: Palmer bað um að fá að fara í tvö ár Fyrrverandi hirti fernu-boltann Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Garnacho búinn að biðjast afsökunar Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Rifust um hver átti að taka vítið Everton áfrýjar stigafrádrætti á nýjan leik Palmer skoraði fernu í stórsigri Chelsea Skytturnar skutu púðurskotum og Man City heldur toppsætinu Tottenham og Man United mætast í bikarúrslitum Allt lagt í sölurnar á Anfield en niðurstaðan grátlegt tap Ten Hag strunsaði út af blaðamannafundi: „Vitum að þetta er ekki nógu gott“ Hollywood-lið Wrexham upp um deild annað árið í röð Man United stal stigi á Vitality-vellinum Afar undarleg sjálfsmörk og markmannsmistök Meistararnir komnir á toppinn Hrikaleg heimsókn norður til Newcastle Ten Hag og nýir yfirmenn hans munu leita að framherja í sumar Andoni Iraola valinn besti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar Barðist við tárin eftir að hann var valinn bestur Luke Littler skaut á Liverpool „Það versta sem ég hef séð hjá þeim undir stjórn Klopp“ Kompany sektaður og dæmdur í tveggja leikja bann Sjá meira