Þremenningarnir sakfelldir fyrir morðið á Ahmaud Arbery Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2021 19:02 Travis McMichael ræðir við lögmann sinn í dómsal. AP Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæpi og morð, fyrir að hafa skotið hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery til bana vegna litarháttar hans.
Travis McMichael, Gregory McMichael og William Bryan hafa allir verið sakfelldir fyrir morðið á Arbery. Þeir eltu Arbery, þar sem hann var úti að skokka í Glynn County í Georgíu, og skutu hann til bana. Kviðdómurinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að þremenningarnir hefðu gerst sekir um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu. Þremenningarnir gætu allir staðið frammi fyrir lífstíðarfangelsi, en ekki liggur fyrir hvenær lengd refsinga verður ákveðin. Sátu fyrir Arbery Arbery var að skokka í gegnum úthverfi í Brunswick í Georgíu í febrúar í fyrra þegar feðgarnir Travis og Gregory McMichael veittu honum eftirför á pallbíl. Þeir báru fyrir sig að þeir hafi grunað Arbery um að hafa staðið að innbrotum í hverfinu og elt hann í því skyni að handtaka hann borgaralega. William Bryan slóst í för með feðgun og veittu mennirnir Arbery eftirför um nokkurt skeið. Þá reyndu þeir einnig að aka í veg fyrir hann. Að endingu sátu þeir fyrir Arbery. Travis fór út úr bíl sínum, vopnaður haglabyssu og kom til átaka milli hans og Arbery. Travis skaut Arbery þrisvar sinnum og viðurkenndi fyrir dómi að Arbery hefði ekki ógnað sér á nokkurn hátt. Ekki handteknir fyrr en myndbandið var birt Mennirnir þrír voru ekki handteknir fyrr en tíu vikum eftir að Arbery var skotinn til bana. Gregory McMichael, faðir Travis, starfaði áður hjá lögreglunni í bænum og sagði hann lögregluþjónum að Arbery hefði líkst innbrotsþjófi, sem hafði náðst á myndavél í hverfi þeirra feðga. Þeir hafi því ákveðið að elta hann og skotið hann í sjálfsvörn. Saksóknari í ríkinu taldi ekki ástæðu til að aðhafast frkear og féllst á að um sjálfsvörn verið að ræða. Þannig væri ekki tilefni til handtöku og léku feðgarnir því lausum hala í tíu vikur eftir morðið. Þegar myndbandið hafði náð dreifingu á samfélagsmiðlum skipaði Brian Kemp, ríkisstjóri Georgíu, Georgia Buerau of Investigation, æðsta löggæsluembætti ríkisins, að taka yfir rannsókn á dauða Arbery. Feðgarnir voru þá handteknir nokkrum klukkustundum síðar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Drápið á Ahmaud Arbery Bandaríkin Tengdar fréttir Sagði Arbery ekki hafa ógnað sér áður en hann miðaði á hann Travis McMichael, sem skaut Ahmaud Arbery til bana, sagði við vitnaleiðslur í dag að Arbery hefði ekki ógnað sér á nokkurn hátt, áður en hann miðaði haglabyssu á hann. McMichael skaut Arbery í febrúar í fyrra eftir að hann skokkaði í gegnum hverfi sem McMichael bjó í. 18. nóvember 2021 21:00 Ákærðir fyrir hatursglæp vegna morðsins á Ahmaud Arbery Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið ákærðir fyrir hatursglæp og tilraun til frelsissviptingar í tengslum við morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í fyrra. Feðgar sem eltu Arbery eru ákærðir fyrir að hafa myrt hann. 28. apríl 2021 23:52 Verjandi vill ekki fleiri svarta presta í dómsal Verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery sagði dómara málsins í gær að hann vildi ekki fleiri „svarta presta“ í dómsal. Það sagði hann eftir að Al Sharpton sat með fjölskyldu Arbery í salnum í fyrradag. 12. nóvember 2021 14:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira
Sagði Arbery ekki hafa ógnað sér áður en hann miðaði á hann Travis McMichael, sem skaut Ahmaud Arbery til bana, sagði við vitnaleiðslur í dag að Arbery hefði ekki ógnað sér á nokkurn hátt, áður en hann miðaði haglabyssu á hann. McMichael skaut Arbery í febrúar í fyrra eftir að hann skokkaði í gegnum hverfi sem McMichael bjó í. 18. nóvember 2021 21:00
Ákærðir fyrir hatursglæp vegna morðsins á Ahmaud Arbery Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið ákærðir fyrir hatursglæp og tilraun til frelsissviptingar í tengslum við morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í fyrra. Feðgar sem eltu Arbery eru ákærðir fyrir að hafa myrt hann. 28. apríl 2021 23:52
Verjandi vill ekki fleiri svarta presta í dómsal Verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery sagði dómara málsins í gær að hann vildi ekki fleiri „svarta presta“ í dómsal. Það sagði hann eftir að Al Sharpton sat með fjölskyldu Arbery í salnum í fyrradag. 12. nóvember 2021 14:01