Skoða eigi leiðir til að treysta á aðra þegar mikið álag er á Landspítala Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. október 2020 13:17 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, svaraði óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. vísir/vilhelm
Fjármálaráðherra segir unnið að því að fjölga hjúkrunarrýmum utan opinbera kerfisins. Leita eigi annarra leiða þegar dregur úr getu Landspítalans. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra hvort auka ætti einkarekstur í heilbrigðisþjónustu til að draga úr álagi á kerfið. „Er ekki rétti tíminn núna til þess að við léttum á heilbrigðiskerfinu og fáum meira fyrir útgjöld skattgreiðendanna með því að semja við einkareknar stofur?“ spurði Sigmundur á Alþingi í morgun. Fjármálaráðherra sagði óháð miklu álagi á kerfið í faraldrinum almennt góða ráðstöfun að semja við þá sem geti veitt heilbrigðisþjónustu með sveigjanlegum og hagkvæmum hætti. Til að mynda aðgerðir sem unnt sé að framkvæma utan sjúkrahúsa. „Ég held að það sé hárrétt ábending að að því marki sem dregið hefur úr getu Landspítalans til að sinna slíkum verkefnum þá eigum við að skoða leiðir til að treysta meira á aðra,“ sagði Bjarni. Öll miðlæg sjúkrahúsþjónusta verði áfram að vera hjá Landspítalanum en horfa megi til annarra aðgerða og einnig til hjúkrunarheimila. Bjarni vísaði til þess að vandi Landspítalans í faraldrinum hefði einna helst verið fráflæðisvandinn, sem dregið hafi úr viðbragðsgetu spítalans og þrótti til að taka við innlögnum sjúklinga sem smitaðir eru af kórónuveirunni. „Þetta er mjög alvarlegt mál. Á sama tíma erum við með óhagkvæmar einingar, eins og t.d. á Vífilsstöðum, sem var algjört bráðabirgðaúrræði. Nú eru í gangi samtöl um að reyna að auka framboð af plássum einmitt í samstarfi við aðila utan hins opinbera kerfis,“ sagði Bjarni.
Alþingi Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Íslandsferðin sem breyttist í martröð Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Fleiri fréttir Langt í að þeir nái sér að fullu Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Sjá meira