Búa sig undir fyrstu æfinguna í algerum Covid-hliðarveruleika Snorri Másson skrifar 10. maí 2021 11:36 Daði og félagar fá að fara út á svalir á hótelinu við og við, en þurfa að öðru leyti að sæta mjög ströngum reglum í aðdraganda Eurovision, sem hefst í næstu viku. RÚV Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður hefur heimild til þess að vera á tveimur stöðum í Rotterdam í Hollandi, þangað sem hann kom í gær ásamt íslenska Eurovision-hópnum.
Gísli má vera á hótelinu og hann má vera í Eurovision-höllinni. Annars staðar ekki, ekki á kaffihúsi, ekki á veitingastað og ekki í partíum. Hann má ekki einu sinni taka með sér kaffi út um lúgu. Gísli Marteinn hefur verið þulur í Eurovision árum saman.@gislimarteinn „Þetta er mjög stíft en við megum fara út að skokka og í göngutúr. Við reynum að gera það og erum ekkert að kvarta, við erum með hollenskar hjálparhellur sem fara út í búð fyrir okkur. Þau fóru í stóra verslunarferð í gær,“ segir Gísli kátur í spjalli við Vísi. Daði og Gagnamagnið eru á sinni fyrstu æfingu í höllinni í dag, sem er nokkuð mikilvægt augnablik í ferlinu fram undan. Veðbankar fylgjast með frammistöðunni. Sveitin keppir í síðari umferð undankeppninnar fimmtudaginn 20. maí. Gísli segir ljóst að Eurovision í ár sé langt frá því að vera sama hátíð fyrir aðstandendur keppninnar og allt starfslið, en að það eigi ekki að koma niður á gæðum sjálfrar útsendingarinnar. Hún verði jafnflott og endranær. Það er hlýtt og sumarlegt í Rotterdam en hópurinn getur í mesta lagi notið þess á svölunum á hótelinu. Partí á vegum Norðurlandanna og borgarstjóra, sem eru í venjulegu árferði mikilvægt atriði fyrir þátttakendur, eru auðvitað á bak og burt í bili. Á sama hátt væri Daði í fjölda fjölmiðlaviðtala á dag en annar háttur er hafður á slíku þetta árið. Blaðamannafundur er haldinn á eftir með tugum blaðamanna og enn fleiri sem skrá sig inn rafrænt.
Eurovision Holland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Fulltrúar Íslands flognir af stað Fulltrúar Íslands í Eurovision í ár héldu af stað út á flugvöll úr útvarpshúsinu í Efstaleiti snemma í morgun, þaðan sem þeir flugu af stað til Rotterdam. 8. maí 2021 09:29 Stigin kynnt af Jaja ding dong-aðdáandanum Olaf Yohansson mun kynna stigin fyrir Íslands hönd í úrslitum Eurovision söngvakeppninnar í ár. Úrslitin fara fram í Rotterdam þann 22. maí næstkomandi. 7. maí 2021 21:27 Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Fleiri fréttir Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Sjá meira
Fulltrúar Íslands flognir af stað Fulltrúar Íslands í Eurovision í ár héldu af stað út á flugvöll úr útvarpshúsinu í Efstaleiti snemma í morgun, þaðan sem þeir flugu af stað til Rotterdam. 8. maí 2021 09:29
Stigin kynnt af Jaja ding dong-aðdáandanum Olaf Yohansson mun kynna stigin fyrir Íslands hönd í úrslitum Eurovision söngvakeppninnar í ár. Úrslitin fara fram í Rotterdam þann 22. maí næstkomandi. 7. maí 2021 21:27