Hundruð meta slegin í hitabylgjunni í Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 21. júní 2022 13:56 Ummerki eftir gróðurelda í Zamora-héraði á norðvestanverðum spáni. Eldarnir eru sagðir þeir umfangsmestu á Spáni í áratugi. Vísir/EPA Hitabylgja sem gekk yfir hluta meginlands Evrópu um helgina gat af sér hundruð hitameta, ekki síst í Frakklandi þar sem hitinn var hve hæst yfir meðaltali. Í Baskalandi var sögulegt hitamet slegið rækilega.
Hitinn náði víða nokkuð yfir fjörutíu gráður á Spáni, Frakklandi og Þýskalandi um helgina. Hann orsakaðist af hitastrók yfir eyðimörkum Norður-Afríku og lágþrýstisvæðis undan vesturströnd Evrópu sem sogaði heitt loft norður yfir meginlandið, að sögn Washington Post. Litla kælingu var að fá úr Miðjarðarhafinu þar sem yfirborðssjór er um fimm gráðum hlýrri en að meðaltali á þessum tíma árs. Bylgjan hófst á Íberíuskaga í síðustu viku en spænskir veðurfræðingar segja að hún sé sú öflugasta svo snemma sumars sem sögur fara af. Þrúgandi hitabylgja hafði þegar leikið Spánverja grátt í maí. Þar hafa geisað skæðir skógareldar, sérstaklega á norðanverðum Spáni. Hámarki var náð um helgina en þá sátu veðurfræðingar sveittir við hitamæla að skrásetja ný met, jafnt mánaðarleg og allsherjarmet. Another historic day of heat in Europe. I can't believe it is only the 19th of June. Unprecedented to witness this level of heat so early in the year.Many June records broken by large margins. Some June national records equaled or broken. pic.twitter.com/cpDySkCxhV— Scott Duncan (@ScottDuncanWX) June 19, 2022 Í Frakklandi voru á annan tuga meta yfir hæsta hita sem nokkur sinni hefur mælst slegin, þar á meðal í Biarritz á suðvesturströndinni þar sem hitinn mældist 42,9°C. Í Pissos fór hitinn í 43,4°C, aðeins 0,1 gráðu frá hæsta hita sem þar hefur mælst. Til viðbótar voru að minnsta kosti tvö hundruð mánaðarmet slegin í Frakklandi um helgina. Í borginni San Sebastián (Donostia) Spánarmegin í Baskalandi fór hitinn í 43,9°C á laugardag, mun heitara en fyrra met. Sunnudagurinn var heitasti dagurinn í Þýskalandi og nágrannaríkjunum. Í Cottbus, suðaustur af Berlín, sýndi hitamælirinn 39,2°C. Hann hafði aldrei farið svo hátt þar frá því að mælingar hófust. Í Póllandi var nýtt hitamet fyrir júní slegið þegar hitinn náði 38,3°C í Slubice. Mánaðarmet var einnig set í Tékklandi, 39 gráður í Husinec. An intense, early heatwave is baking western Europe, with temperatures in many places topping 40°C on Saturday 18 June. This maps shows the land surface temperature of countries in Western Europe and Algeria https://t.co/BAAvQ2kP9B pic.twitter.com/bpaWDSfZjn— ESA EarthObservation (@ESA_EO) June 21, 2022 Greining á hitabylgjunni nú liggja enn ekki fyrir en í fyrri bylgjum hafa vísindamenn séð skýr merki þess að hnattræn hlýnun af völdum manna hafi gert þær margfalt líklegri en ella. Nú þegar hefur hlýnað um 1,1 gráður á jörðinni borið saman við tímabilið fyrir iðnbyltingu vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa sem rekja má til stórfelldrar losunar manna á gróðurhúsalofttegundum, fyrst og fremst með bruna á jarðefnaeldsneyti.
Loftslagsmál Spánn Frakkland Veður Tengdar fréttir Skógareldar loga um allan Spán Ekkert lát er á gríðarlegri hitabylgju á Spáni sem nú hefur staðið í meira en viku. Skógareldar loga um allt land og hefur þurft að rýma á annan tug bæja á Norður-Spáni. 18. júní 2022 14:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Fleiri fréttir Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Sjá meira
Skógareldar loga um allan Spán Ekkert lát er á gríðarlegri hitabylgju á Spáni sem nú hefur staðið í meira en viku. Skógareldar loga um allt land og hefur þurft að rýma á annan tug bæja á Norður-Spáni. 18. júní 2022 14:31