Konur í Afganistan og Palestínu njóta góðs af jólagjöfum UN Women Heimsljós 6. desember 2021 15:30 UN Women Táknrænar jólagjafir UN Women eru í formi fallegra gjafabréfa bæði á pappír og í rafrænu formi. Jólagjafir UN Women í ár eru neyðarpakki til konu í Afganistan og sálræn aðstoð til ekkju í Palestínu. „Jólagjafir UN Women njóta sívaxandi vinsælda. Þetta eru gjafirnar sem veita von og hjálpa konum að viðhalda reisn sinni í erfiðum aðstæðum. Margir panta jólagjafir UN Women og gefa gjafabréfið með sem jólakort í pakkann,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi í fréttatilkynningu. Neyðarpakkinn inniheldur tíðavörur, tannbursta og tannkrem, sápu, þvottaefni, nærfatnað og handklæði. Þessi pakki auðveldar konum að viðhalda persónulegu hreinlæti við erfiðar aðstæður og minnkar um leið líkur á veikindum og takmarkar sýkingarhættu. „Við bjóðum einnig upp á fjölda annarra táknrænna jólagjafa. Ein þeirra vinsælustu er sálræn aðstoð, sem veitir konu sem misst hefur maka í átökunum í Palestínu þrjá sálfræðitíma. Sú gjöf kostar 3.500 krónur,“ bætir Stella við. Táknrænar jólagjafir UN Women eru í formi fallegra gjafabréfa sem er annað hvort hægt að fá á stífum pappír eða í rafrænu formi. Gjafirnar fást á vefsíðu UN Women. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Palestína Afganistan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent
Jólagjafir UN Women í ár eru neyðarpakki til konu í Afganistan og sálræn aðstoð til ekkju í Palestínu. „Jólagjafir UN Women njóta sívaxandi vinsælda. Þetta eru gjafirnar sem veita von og hjálpa konum að viðhalda reisn sinni í erfiðum aðstæðum. Margir panta jólagjafir UN Women og gefa gjafabréfið með sem jólakort í pakkann,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi í fréttatilkynningu. Neyðarpakkinn inniheldur tíðavörur, tannbursta og tannkrem, sápu, þvottaefni, nærfatnað og handklæði. Þessi pakki auðveldar konum að viðhalda persónulegu hreinlæti við erfiðar aðstæður og minnkar um leið líkur á veikindum og takmarkar sýkingarhættu. „Við bjóðum einnig upp á fjölda annarra táknrænna jólagjafa. Ein þeirra vinsælustu er sálræn aðstoð, sem veitir konu sem misst hefur maka í átökunum í Palestínu þrjá sálfræðitíma. Sú gjöf kostar 3.500 krónur,“ bætir Stella við. Táknrænar jólagjafir UN Women eru í formi fallegra gjafabréfa sem er annað hvort hægt að fá á stífum pappír eða í rafrænu formi. Gjafirnar fást á vefsíðu UN Women. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Palestína Afganistan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent