fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Bjarni segir Ingu að skammast sín – „Þú ætlar að setja mig á götuna, rúinn æru og heiðri“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 22. janúar 2022 17:02

Mynd af Bjarna/Aðsend - Mynd af Ingu/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Sævarsson, hrossabóndi í Arnarholti, sendir Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, kaldar kveðjur í opnu bréfi sem birtist á Vísi í dag.

Inga er harðlega á móti blóðmerahaldi á Íslandi og hefur ekki legið á þeirri afstöðu sinni. Meðal annars hefur hún í tvígang lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að blóðtaka úr fylfullum hryssum (blóðmerum) verði bönnuð hér á landi. Málefni blóðmera hafa verið áberandi í umræðunni undanfarna mánuði eftir að dýraverndarsamtökin AWF/TSB birtu heimildamyndband frá Íslandi sem sýndi slæma meðferð hryssa á nokkrum blóðtökustöðum hér á landi.

Bjarni er afar ósáttur með afstöðu Ingu í málinu en hann útskýrir fyrir henni í pistlinum hvers vegna hann stundar blóðtöku.

„Ég er ungur hrossabóndi, hef ekki verið talinn til efnamanna og verð það trúlega aldrei. Síðastliðin ár hafa ekki verið landbúnaðinum hagfelld, afurðaverð lágt og hefur engan veginn haldið í við verðlagsþróun. Ég keyri ekki um á nýjum Land cruiser heldur klæðist ég gömlum stígvélum og rifinni úlpu við mitt brauðstrit, hef ekki ráð á öðru. Afar lítið rými hefur verið í hinum hefðbundnu búgreinum fyrir ungt fólk, því fór ég þá leið að halda merar til blóðgjafar því það er eina búgreinin þar sem eitthvað pláss hefur verið fyrir nýja aðila,“ segir hann.

„Því fer fjarri að þær séu einhver villidýr“

Bjarni fullyrðir að hann og sitt samstarfsfólk gangi ekki á heilsu meranna. „Annars væri þetta ekki og hefði ekki verið stundað í áratugi með góðum árangri. Reynslan lýgur ekki. Þær eru hraustar og því fer fjarri að þær séu einhver villidýr sem mega ekki sjá mann án þess að sturlast eins haldið hefur verið fram af mikilli vanþekkingu,“ segir hann.

Þá segist Bjarni elska merarnar sínar og að þær elski hann á móti, hann líti til þeirra nánast daglega allt árið um kring. Hann segir þær koma til sín og heilsa sér og að þær séu ljúfar og rólegar. „Í mínum búskap hef ég keypt að allskonar hryssur, sumar styggar og ótamdar. Þær undantekningalaust spekjast fljótt í mínu stóði og verða ekki minni djásn í mínum augun en þær sem ég hef fengið gæfar,“ segir hann.

„Þar heggur sá er hlífa skyldi kæra Inga“

Undir lokin á pistlinum sendir hann Ingu væna pillu. „Nú hefur þú á undanförnum misserum farið mikinn og haldið því fram að þú ætlir þér að útrýma fátækt ásamt því að vera mikill dýravinur. Því finnst mér skjóta skökku við að þú ætlir þér að svipta mig lifibrauðinu, sem var fyrir af skornum skammti og auk þess framundan gífurlegar hækkanir aðfanga í landbúnaði,“ segir hann.

„Aukin heldur vilt þú neyða mig til að slátra mínum bústofni, merunum sem ég elska, með því að banna þeim að sjá sér farborða. Undarleg dýravernd það.“

Bjarni botnar pistilinn með því að segja Ingu að skammast sín. „Þar heggur sá er hlífa skyldi kæra Inga. Þú ætlar að setja mig á götuna, rúinn æru og heiðri og skipa merunum mínum í ómerkta gröf. Þú ættir að skammast þín fyrir skinhelgina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki