Meira en helmingur Covid-sjúklinga fann fyrir truflun á bragðskyni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. desember 2020 07:44 Til þess hafa flestar rannsóknir á einkennum Covid-19 byggst á upplýsingum um einstaklinga sem hafa þurft innlögn á sjúkrahús en rannsókn Elíasar beindist að öðrum hópi; þeim sem voru skráðir hjá Covid-göngudeild Landspítalans. Vísir/Vilhelm Niðurstöður íslenskrar rannsóknar um tíðni og þróun einkenna meðal fólks sem greindist með Covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins sýna að meira en helmingur sjúklinga fann fyrir bragðskyns- og lyktarskynstruflunum. Niðurstöðurnar sýna einnig að nærri helmingur sjúklinganna fann fyrir einkennum í meltingarfærum.
Niðurstöður íslenskrar rannsóknar um tíðni og þróun einkenna meðal fólks sem greindist með Covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins sýna að meira en helmingur sjúklinga fann fyrir bragðskyns- og lyktarskynstruflunum. Niðurstöðurnar sýna einnig að nærri helmingur sjúklinganna fann fyrir einkennum í meltingarfærum. Þá uppfyllti nærri fjórðungur þeirra sem greindust ekki einkennamerki Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) fyrir greiningarpróf og 14% uppfylltu ekki einkennamerki Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC). Þessar niðurstöður þykja benda til þess að allt að 24% sjúklinga sem greindust með Covid-19 hefðu ekki greinst með sjúkdóminn eða greiningu hefði seinkað ef aðeins þeir sem uppfylltu fyrrnefnd skilmerki hefðu fengið að fara í sýnatöku. Fyrst var greint frá niðurstöðum rannsóknarinnar í læknatímaritinu British Medical Journal fyrr í vikunni en fjallað er um rannsóknina á vef Landspítalans og Háskóla Íslands. Fyrsti höfundur greinarinnar er nýdoktorinn og læknirinn Elías Eyþórsson en rannsóknina vann hann undir handleiðslu Runólfs Pálssonar og Martins Inga Sigurðssonar, prófessora við læknadeild, og í samstarfi við stóran hóp vísindamanna, lækna og læknanema við Landspítala og HÍ. Til þess hafa flestar rannsóknir á einkennum Covid-19 byggst á upplýsingum um einstaklinga sem hafa þurft innlögn á sjúkrahús en rannsókn Elíasar beindist að öðrum hópi. „Rannsókn Elíasar og félaga byggði á gögnum sem var safnað á Covid-göngudeild Landspítala. Allir sem greindust með COVID-19 (jákvætt PCR-próf fyrir SARS-CoV-2) voru skráðir í símaþjónustu deildarinnar sem fól í sér tíð símtöl hjúkrunarfræðinga og lækna þar sem lagt var mat á líðan fólks og ráðgjöf veitt. Jafnframt var í hverju símtali spurt hvort einhver af 19 skilgreindum einkennum væru til staðar og mat lagt á alvarleika veikindanna. Svör við þessum spurningum voru skráð kerfisbundið á sérstakt eyðublað sem var hannað fyrir þjónustu Covid-göngudeildarinnar og var skráningin uppfærð eftir hvert símtal. Rannsóknin náði til allra 1.797 einstaklinga sem greindust með Covid-19 frá 28. febrúar til 30. apríl 2020 og var 1.564 sem greindust eftir að skráningarblaðið var tekið í notkun gefinn sérstakur gaumur,“ segir í tilkynningu á vef Landspítalans. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að algengustu einkenni Covid-19 voru slappleiki (75%), hósti (73%) og höfuðverkur (73%). Minna en helmingur (48%) fékk hita og 58% voru með bragðskynstruflun og 57% lyktarskynstruflun. „Þótt oft sé talað um Covid-19 sem öndunarfærasjúkdóm er athyglisvert að 48% höfðu einkenni frá meltingarfærum,“ segir á vef Landspítalans þar sem má lesa nánar um rannsóknina. Hér má svo nálgast greinina í British Medical Journal.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu særður eftir skotárás Erlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Fleiri fréttir Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Utanríkisráðherrar Íslands og Eystrasaltsríkjanna í Georgíu Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Sjá meira