Undanúrslitin í bikarnum í kvöld

Fram og Haukar mætast í fyrri undanúrslitaleiknum í kvöld.
Fram og Haukar mætast í fyrri undanúrslitaleiknum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Í kvöld ræðst hvaða lið leika til úrslita í bikarkeppni karla í handknattleik, Powerade-bikarnum, en undanúrslitaleikirnir fara þá fram í Laugardalshöllinni.

Fram og Haukar eigast við í fyrri leiknum sem hefst klukkan 18 en viðureign Aftureldingar og Stjörnunnar hefst klukkan 20.15.

Sigurliðin í þessum leikjum mætast í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni klukkan 16 á laugardaginn.

Valsmenn eru ríkjandi bikarmeistarar en Stjarnan sló þá út í átta liða úrslitum keppninnar á dögunum.

Auk þess er einn frestaður leikur í úrvalsdeild karla á dagskránni í kvöld. Hörður og ÍBV mætast á Ísafirði klukkan 18.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert