Ótrúlega nálægt öðrum sigrinum

Theódór Elmar í leik með Akhisarspor.
Theódór Elmar í leik með Akhisarspor. Ljósmynd/Akhisarspor

Akhisarspor var ótrúlega nálægt sterkum útisigri á Istanbulspor í tyrknesku B-deildinni í fótbolta í dag en lokatölur urðu 2:2. 

Theódór Elmar Bjarnason lék allan leikinn með Akhisarspor sem komst í 2:0 á 43. mínútu. Þannig var staðan allt fram að 90. mínútu þegar heimamenn minnkuðu muninn og kom jöfnunarmarkið á sjöttu mínútu uppbótartímans. 

Hefði sigurinn verið kærkominn fyrir Elmar og félaga en liðið er með sex stig eftir sex leiki og aðeins með einn sigur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert