Furðar sig á ákvörðun heilbrigðisráðherra og spyr hvað hafi eiginlega breyst Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. janúar 2021 15:00 Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar Alþingis. Vísir/Vilhelm Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar Alþingis telur stjórnvöld ekki hafa heimild í lögum til að skylda alla farþega sem koma til landsins í tvöfalda skimun, líkt og heilbrigðisráðherra tilkynnti í hádeginu. Helga Vala furðar sig á því að ráðherra telji sig hafa heimild til þess núna og spyr hvað hafi breyst frá því að málið kom til álita í síðustu viku.
Velferðarnefnd sat á fundi um frumvarp til breytinga á sóttvarnalögum þegar fréttir af ákvörðun heilbrigðisráðherra bárust í hádeginu. Helga Vala segir í samtali við Vísi að þeir lögspekingar sem komið hafi fyrir nefndina séu allir sammála um að heimildina skorti. „Og eru þannig sammála fyrri skoðun heilbrigðisráðherra um það,“ segir Helga Vala. Vilja búa til lagastoð með frumvarpi um landamæraskimun Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur fram frumvarp á Alþingi í dag með bráðabirgðaákvæðum við sóttvarnarlög sem myndu heimila að skylda fólk í tvöfalda skimun við landamærin. „Við hlýðum Þórólfi þar, við skiljum það. Hann bað um þetta í nóvember en heilbrigðisráðherra féllst ekki á það þá og sagði að það vantaði lagastoð. Ég spurði þá: Við erum löggjafinn, setjum lagastoð undir þetta,“ segir Helga Vala. „Aftur bað hann [Þórólfur] um þetta og það var ekki farið að því í síðustu viku en núna allt í einu telur ráðherra sig ekki þurfa lagastoð. Og ég er auðvitað lögfræðingur og ég verð að vera sammála kollegum mínum að ég tel lagastoð skorta. Og ég held það sé óhjákvæmilegt að skýra lögin því framsal á þessu valdi er langt umfram það sem eðlilegt er.“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í dag að ástæðan fyrir ákvörðuninni væru þau brot á sóttkví sem komið hefðu upp og vísaði til „vaxandi alvarleika“ með hverjum deginum sem líður. Þá sagði hún að stjórnvöld teldu nú að lög styðji nægilega vel við ákvörðunina vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp. Því sé gripið til þessa neyðarúrræðis. Skilur alls ekki hvað breyttist Helga Vala furðar sig á þessari afstöðu. „Ráðuneytið hefur verið algjörlega skýrt með það að það skorti lagastoð. Hvað gerðist? Það er engin breyting á því. Stjórnarskránni hefur ekki verið breytt í millitíðinni,“ segir Helga Vala. „En svo segist hún [Svandís] allt í einu ekki þurfa lagaheimild? Ég skil ekki hvað breyttist, bara alls ekki.“ Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.Vísir/vilhelm Þessi neyð sem vísað er til – heldurðu að hún hafi eitthvað að segja gagnvart lögunum? „Þeir sjá ekki að það sé einhver heimild frekari núna en þá. En ég skal ekki segja, allavega ekki þeir sem ég hef heyrt í og lesið eftir.“ Þá telur Helga Vala enn verði einhver bið á því að frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum verði afgreitt. „Miðað við umsagnir og miðað við að við erum búin með þrjá fundi og eigum eftir að fá tvo gesti inn finnst mér ólíklegt að það náist alveg í bráð. Og ég er ekki viss um að það sé eining innan stjórnarliðsins um að keyra þetta mál í gegn.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Tengdar fréttir Bólusetningarvottorð tekin gild á landamærum Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögu vinnuhóps um vottorð, þess efnis að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og gefin eru út í EES/EFTA-ríki, verði tekin gild á landamærum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. 15. janúar 2021 15:27 Litakóðunarkerfi á landamærum frá og með 1. maí Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að frá og með 1. maí verði tekið upp litakóðunarkerfi á landamærum. Áfram verði tvöföld skimun á landamærum fyrir rauð lönd en einstaklingar sem koma frá grænum og appelsínugulum löndum verður boðið upp á að mæta með neikvætt PCR próf og fara svo í staka skimun á landamærum. 15. janúar 2021 12:34 Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15. janúar 2021 10:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Sjá meira
Bólusetningarvottorð tekin gild á landamærum Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögu vinnuhóps um vottorð, þess efnis að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og gefin eru út í EES/EFTA-ríki, verði tekin gild á landamærum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. 15. janúar 2021 15:27
Litakóðunarkerfi á landamærum frá og með 1. maí Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að frá og með 1. maí verði tekið upp litakóðunarkerfi á landamærum. Áfram verði tvöföld skimun á landamærum fyrir rauð lönd en einstaklingar sem koma frá grænum og appelsínugulum löndum verður boðið upp á að mæta með neikvætt PCR próf og fara svo í staka skimun á landamærum. 15. janúar 2021 12:34
Fimm greindust innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. Sjö greindust á landamærum. 15. janúar 2021 10:56