Keyrði í þrjá tíma til að myrða svart fólk Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2022 14:46 Payton Gendron í dómsal í nótt. AP/Mark Mulville Payton S. Gendron, sem er átján ára gamall, keyrði í rúma þrjá tíma í gær til Buffalo í New York. Þegar hann var kominn á leiðarenda, um 320 kílómetrum frá heimili sínu, skaut hann tíu manns til bana og særði þrjá. Lögreglan segir árásina vera hatursglæp en Gendron fór sérstaklega til Buffalo til að myrða svart fólk.
Ellefu af þeim þrettán sem hann skaut voru dökkir á hörund. Hann skaut fjóra fyrir utan verslun í Buffalo, þar af þrjá sem dóu, og fór svo inn í verslunina þar sem hann hélt skothríðinni áfram. „Þetta var bókstaflega glæpur sem framinn var vegna haturs,“ hefur New York Times eftir John Garcia, fógeta. Hann lýsti fjöldamorðinu sem „hreinni illsku“. AP fréttaveitan segir að meðal hinna látnu sé Aaron Salter, fyrrverandi lögregluþjónn sem starfaði sem öryggisvörður í versluninni. Hann skaut nokkrum skotum að árásarmanninum og hæfði hann einu sinni en Gendron var í skotheldu vesti og særðist ekki. Hann skaut öryggisvörðinn til bana. Hin 86 ára gamla Ruth Whitfield var einnig meðal hinna látnu. Var í beinni útsendingu Gendron sýndi árásina í beinni útsendingu á netinu með myndavél sem hann hafði komið fyrir á hjálmi sínum. Forsvarsmenn Twitch, þar sem hann streymdi frá árásinni, segja þó að lokað hafi verið á útsendinguna innan við tveimur mínútum eftir að skothríðin hófst. Árásarmaðurinn virðist aðhyllast kenningu um að minnihlutahópar séu að leysa hvítt fólk af hópi í Bandaríkjunum og annars staðar með markvissum hætti. Það er samkvæmt löngu skjali sem hann birti á netinu skömmu fyrir árásina. Í skjalinu lýsti hann einnig vilja sínum til að myrða svart þeldökkt fólk. Kenning þessi hefur orðið sífellt meira áberandi á hægri væng stjórnmála í Bandaríkjunum og hefur orðið sífellt meira móðins meðal hægri sinnaðra stjórnmálamanna og sjónvarpsmanna. Skjalið ber einnig merki þess að Gendron hafi fengið innblástur frá Brenton Tarrant, sem skaut 51 til bana í tveimur moskum í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019. Hann streymdi einnig frá árásinni á netinu. Hér má sjá myndband frá því þegar Gendron var færður fyrir dómara í nótt. Gendron hafði skrifað á byssu sína og var skriftin sýnileg á myndbandi hans. Meðal annars hafði hann skrifað N-orðið svokallaða og einnig: „Hér eru bæturnar ykkar“, og vísaði hann þar til umræðu um að afkomendur þræla í Bandaríkjunum ættu að fá bætur frá ríkinu. Hann hafði einnig skrifað töluna fjórtán á byssuna. Það er sömuleiðis tilvísun í slagorð hvítra þjóðernissinna í Bandaríkjunum. Þegar lögregluþjóna bar að garði beindi Gendron byssu sinni fyrst að sjálfum sér en lögregluþjónar fengu hann til að leggja hana frá sér og gefast upp. Hann var vopnaður hálfsjálfvirkum riffli með margra skota magasín, sem ólöglegt er í New York. Hér að neðan má sjá upphaf streymis Gendron, áður en árásin hófst. Það síðasta sem hann sagði áður en hann fór úr bíl sínum og skaut konu var: „Maður verður bara að vaða í þetta, er það ekki? Þetta er endirinn. Hér.“ Moments before the shooter opened fire on people loading their groceries in their car in front of the store. (Not graphic, cuts before gunfire erupts.) pic.twitter.com/b2efL7zShq— Doge (@IntelDoge) May 14, 2022
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Tíu létu lífið í skotárás sem var streymt Tíu manns létu lífið í Buffalo í New York-fylki í Bandaríkjunum í dag þegar karlmaður skaut á gesti í verslunarmiðstöð. Byssumaðurinn streymdi árásinni á streymissíðunni Twitch. 14. maí 2022 21:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Innlent Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Erlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti Innlent Fleiri fréttir Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Sjá meira
Tíu létu lífið í skotárás sem var streymt Tíu manns létu lífið í Buffalo í New York-fylki í Bandaríkjunum í dag þegar karlmaður skaut á gesti í verslunarmiðstöð. Byssumaðurinn streymdi árásinni á streymissíðunni Twitch. 14. maí 2022 21:29