Viðskipti innlent

SA og VÍ svara Samkeppniseftirlitinu: „Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu?“

Samúel Karl Ólason skrifar
Í yfirlýsingu frá SA og VÍ, sem ber titilinn „Dæmalaus aðför Samkeppniseftirlitsins að upplýstri umræðu“, segir að það sé meginhlutverk hagsmunasamtaka fyrirtækja að standa vörð um hagsmuni íslensks atvinnulífs. Eðlilegt sé að þau ræði málefni sem tengist félagsmönnum og atvinnulífinu í heild.
Í yfirlýsingu frá SA og VÍ, sem ber titilinn „Dæmalaus aðför Samkeppniseftirlitsins að upplýstri umræðu“, segir að það sé meginhlutverk hagsmunasamtaka fyrirtækja að standa vörð um hagsmuni íslensks atvinnulífs. Eðlilegt sé að þau ræði málefni sem tengist félagsmönnum og atvinnulífinu í heild. Vísir/Vilhelm

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands segja engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það sé ekki úr lausu lofti gripið að verðhækkanir séu líklegar og það sé í raun óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða.

Þetta kemur fram í svari SA og VÍ við tilkynningu Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr í dag.

Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins var brýnt var fyrir forsvarsmönnum hagsmunasamtaka að taka ekki þátt í umfjöllun um verðlagningu þar sem slíkt gæti verið óheimilt samkvæmt samkeppnislögum. Vísað var til ummæla framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar, og formanns Bændasamtaka Íslands í fjölmiðlum þar sem þeir töluðu um breytingar á verðlagi í ljósi vöruskorts, hækkandi hrávöruverðs og efnahagslegra afleiðinga faraldursins.

Lýsa skömmunum sem dæmalausri aðför

Er það mat Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands að með aðfinnslum sínum sé Samkeppniseftirlitið komið langt út fyrir lögbundið hlutverk sitt og að um sé að ræða dæmalausa aðför að upplýstri umræðu.

Í yfirlýsingu frá SA og VÍ, sem ber titilinn „Dæmalaus aðför Samkeppniseftirlitsins að upplýstri umræðu“, segir að það sé meginhlutverk hagsmunasamtaka fyrirtækja að standa vörð um hagsmuni íslensks atvinnulífs. Eðlilegt sé að þau ræði málefni sem tengist félagsmönnum og atvinnulífinu í heild. Þar megi meðal annars nefnda umræðu um launakjör, kvaðir stjórnvalda á borð við gjöld og leyfisveitingar og hrávöruverð.

„Að benda á þá staðreynd að þróun varðandi fyrrgreind atriði geti leitt til verðhækkana felur hvorki í sér brot á samkeppnislögum né hvetur það til þeirra. Í raun er óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða þegar ýmsar kvaðir sem stjórnvöld setja hafa áhrif á verðlag á þeim vörum og þjónustu sem félagsmenn þeirra bjóða upp á,“ segir í yfirlýsingunni.

Segjast ekki hafa hvatt til verðhækkana

Þá er bent á að SA standi fyrir ársfjórðungslegri könnun í samstarfi við Seðlabanka Íslands þar sem forsvarsmenn stærstu fyrirtækja landsins eru spurðir út í stöðu og horfur á efnahagslífinu. Niðurstöðurnar séu nýttar við vinnslu Peningamála Seðlabankans.

„Á að skilja tilkynningu Samkeppniseftirlitsins sem svo að hagsmunasamtök fyrirtækja megi ekki lengur tjá sig um efni þessarar mikilvægu könnunar?“ er spurt í áðurnefndri yfirlýsingu.

SA og VÍ segja að í þeim tilfellum sem Samkeppniseftirlitið vísi í sé verið að ræða um lýsingar á opinberum hagtölum. Ekki sé verið að hvetja til verðhækkana. Það sé vel þekkt að hrávöruverð og erlendu verðbólguþróun hafi áhrif á neysluverð í einstaka löndum og þau áhrif komi fram með tímatöf.

Er vísað til rannsókna sem sýna fram á að áhrif erlendrar verðþróunar á neysluverð.

„Engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það er mat SA og VÍ að með aðfinnslum sínum sé Samkeppniseftirlitið komið langt út fyrir lögbundið hlutverk sitt. Hversu langt má ganga? Hverjir mega tjá sig? Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu? Eða greiningaraðila, t.d. innan viðskiptabankanna? Mega hagsmunasamtök fyrirtækja tjá sig um vaxtahækkanir?“

Áhugasamir geta lesið yfirlýsingu SA og VÍ hér á vef SA.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×