Mældu ýtrustu hyldýpi heimshafanna Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2021 14:24 Móðurskipið Pressure Drop í Suður-Íshafinu. Á dekkinu á skuti skipsins sést kafbáturinn Limiting Factor sem kafaði niður í dýpstu hyli heimshafanna. Caladan Oceanic LLC Dýpstu glufur á hafsbotninum í heimshöfunum fimm voru kortlagðar á nákvæmari hátt en áður hefur verið gert í leiðangri bandarísks ævintýramanns undanfarin ár. Dýptarmælingarnar skáru loks úr um hverjir dýpstu staðirnir í Indlandshafi og Suður-Íshafinu eru í raun og veru.
Djúpin fimm var leiðangur bandaríska ævintýra- og fjármálamannsins Victors Vescovo en hann varð fyrsti maðurinn til þess að fara í kafbáti niður á mestu dýpi allra hafanna í leiðangrinum. Leiðangursmenn kortlögðu dýpstu hluta hafsbotnsins í Kyrrahafi, Atlantshafi, Indlandshafi og Norður- og Suður-Íshafi. Niðurstöður dýptarmælinganna voru birtar í vísindaritinu Geoscience Data Journal. Sum svæðanna voru vel þekkt fyrir en leiðangurinn staðfesti í fyrsta skipti að Sundadjúpállinn við Indónesíu væri dýpsti hluti Indlandshafs, 7.187 metra djúpur. Dýpsti hlutinn djúpálsins reyndist 387 kílómetrum frá því sem hann var talinn vera áður en mælingarnar voru gerðar, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Í Suður-Íshafinu reyndist svæði sem leiðangursmenn nefndu Þáttardjúp [e. Factorian Deep] til heiðurs kafbátnum Takmarkandi þættinum [e. Limiting Factor] dýpsti hluti hafsbotnsins, 7.432 metra djúpt. Þáttardjúp er syðsti hluti Suður-Sandvíkurdjúpálsins. Norðar í sama djúpál er að finna enn dýpri lægð, svonefnt Loftsteinadjúp sem er 8.265 metra djúpt. Það tilheyrir þó tæknilega Atlantshafi. Victor Vescovo (t.v.) vildi verða fyrsti maðurinn til að kafa niður á dýpstu staði heimshafanna fimm. Honum tókst það þegar hann kafaði niður að Molloy-holunni í Norður-Íshafinu í ágúst árið 2019.Five Deeps Dýpsti staður á hafsbotninum á jörðinni er Challenger-dýpi í Maríönudjúpálnum í Kyrrahafi. Það er 10.924 metra djúpt samkvæmt mælingu leiðangursmanna. BBC segir að skekkjumörk mælinga Djúpanna fimm séu um fimmtán metra og að afar erfitt muni reynast að mæla hafsbotninn með meiri nákvæmni en það. Heimshöfin eru enn að miklu leyti ókannað svæði. Um 80% hafsbotnsins hefur þannig aldrei verið mældur eins nákvæmlega og gert var í leiðangrinum.
Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Maðurinn ríkisborgari Möltu Innlent „Hvers konar „motherfucking“ óþverri væri þessi guð ef hann er til“ Innlent Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Innlent Fleiri fréttir Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Sjá meira