Kristófer: Enginn að spila vörn og enginn á sömu blaðsíðu Smári Jökull Jónsson skrifar 1. mars 2021 21:29 Kristófer Acox sneri aftur eftir meiðsli og skoraði 11 stig fyrir Valsmenn í tapi gegn Grindavík. vísir/vilhelm Kristófer Acox var ekki ánægður með leik Vals sem tapaði gegn Grindavík í Domino´s deildinni í kvöld. „
Aðallega var þetta varnarleikurinn, við fáum á okkur nærri 100 stig og vorum að spila mjög slappa vörn fannst mér alveg frá fyrstu mínútu. Við byrjum strax að elta og náum aldrei að komast yfir þennan múr að jafna eða komast yfir,“ sagði Kristófer í samtali við Vísi að leik loknum í kvöld. Valsliðið hafði aldrei forystuna í leiknum en héldu sig samt í námunda við heimamenn og virtust ætla að bíta frá sér í þriðja leikhluta þegar varnarleikurinn lagaðist. „Þeir eru þannig lið að þegar þeir byrja að setja þessi villtu og erfiðu skot er mjög erfitt að eiga við þá. Það er mjög erfitt að byrja á því að elta.“ „Það er svolítið okkar að við sýnum inn á milli hvað við getum verið öflugir og spilað góða vörn, sýnum það í 1-2 varnir og svo er þetta meira af því sama gamla. Enginn að spila vörn og enginn á sömu blaðsíðu. Við gefum of mikið af auðveldum stigum og það er eitthvað sem við eigum langt í land með.“ Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals sagði að það hefði verið eins og Valsliðið hefði verið að koma úr tveggja vikna fríi frekar en tveggja vikna æfingum. „Við nýttum þessa pásu eins og flestir, reynum að æfa en við erum að fá inn tvo nýja leikmenn. Ég náði ekkert að æfa í hléinu. Fyrir hlé vorum við ekkert á góðum stað sem lið en við erum með mikið af leikmönnum og þurfum að koma þeim öllum á sömu blaðsíðuna.“ „Menn þurfa að draga inn andann, róa sig niður og finna sjálfstraustið. Það eru mjög margir í liðinu okkar að spila töluvert undir getu en við höfum ekki tíma til að vera að gera mistök. Við höfum ekki þann lúxus að geta misst tvö eða fjögur stig hér og þar.“ Fyrir leikinn voru Valsarar tveimur stigum á eftir Grindavík í 9.sætinu en missa Suðurnesjaliðið fram úr sér núna. „Við erum ekki í sæti fyrir úrslitakeppni eins og er. Ef við ætlum okkur að gera eitthvað í þessu móti þá þurfum við að koma í alla leiki til að vinna og sækja tvö stig.“
Dominos-deild karla Valur UMF Grindavík Tengdar fréttir Leik lokið: Grindavík - Valur 97-85 | Valsmenn höfðu ekki erindi sem erfiði í Grindavík Grindvíkingar unnu góðan sigur á liði Vals í Domino´s deild karla í körfuknattleik í kvöld. Heimamenn leiddu allan leikinn og unnu að lokum 97-85 sigur. 1. mars 2021 20:50 Mest lesið Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabbamein til að sleppa við bann Sport Einar Árni hættur hjá Hetti Körfubolti Segir að Ten Hag sé búinn að vera Enski boltinn Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Íslenski boltinn Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Enski boltinn Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Enski boltinn Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Körfubolti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Körfubolti Fleiri fréttir Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Gaf á sjálfan sig, tróð með látum og fór svo meiddur af velli Úlfarnir með stórsigur í fyrsta leik gegn Suns Þórsarar unnu oddaleikinn og halda áfram í undanúrslit Öruggur sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik „Fínt að enda þetta þannig að fólk fái eitthvað fyrir peninginn“ Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Sjá meira
Leik lokið: Grindavík - Valur 97-85 | Valsmenn höfðu ekki erindi sem erfiði í Grindavík Grindvíkingar unnu góðan sigur á liði Vals í Domino´s deild karla í körfuknattleik í kvöld. Heimamenn leiddu allan leikinn og unnu að lokum 97-85 sigur. 1. mars 2021 20:50
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum