Lýsa yfir áhyggjum af vegferð lögreglunnar Árni Sæberg skrifar 20. mars 2023 18:29 Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands. vísir/Vilhelm Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem hún fordæmir að enn einn blaðamaðurinn hafi hlotið stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið svokallaða.
Stjórn BÍ samþykkti ályktunina í kjölfar þess að Inga Frey Vilhjálmssyni, blaðamanni á Heimildinni, var tilkynnt að hann hefði hlotið stöðu sakbornings og að hann skyldi mæta í skýrslutöku hjá lögreglu. „Stjórn Blaðamannafélagsins fordæmir að enn einn blaðamaðurinn, í þetta sinn Ingi Freyr Vilhjálmsson, hljóti stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið, fyrir það eitt að sinna störfum sínum. Samkvæmt upplýsingum sem Ingi Freyr fékk hjá lögreglu við skýrslutöku fyrir fáeinum dögum er sakarefnið það eitt að hann var viðtakandi tölvupósts,“ segir í ályktuninni. Þá lýsir stjórnin jafnframt yfir miklum áhyggjum af þeirri vegferð sem lögreglan virðist vera á, að það sé nú talið mögulega saknæmt athæfi að taka á móti tölvupóstum eða hvers kyns upplýsingum. „Það er einmitt kjarninn í vinnu hvers blaðamanns: Að taka á móti upplýsingum, meta trúverðugleika þeirra og fréttagildi í þágu almennings.“ Ákvörðun Páleyjar fáránleg Þá bendir stjórnin á fáránleika ákvörðunar Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, að veita blaðamönnum stöðu sakborninga í málinu, enda liggi ekki fyrir að þeir hafi gerst sekir um saknæmt athæfi. „Enn fremur vill Blaðamannafélagið undirstrika að störf og tjáningarfrelsi blaðamanna njóta ríkrar verndar vegna þess sérstaka hlutverks sem fjölmiðlar gegna með tilliti til opinberrar umræðu í lýðræðisríki. Því ber að gjalda varhug við íhlutun lögreglu sem kann að vera túlkuð sem afskipti af störfum blaðamanna við öflun og miðlun frétta um mikilvæg málefni,“ segir í ályktun. Töfin lýsandi fyrir vinnubrögð lögreglunnar Í frétt Heimildarinnar um mál Inga Freys segir að honum hafi ekki verið tilkynnt um stöðu sína fyrr en á dögunum, þó hann hefði haft stöðu sakbornings frá upphafi Samherjamálsins. Ástæðan hafi verið að lögreglan hefði ekki vitað að Ingi Freyr byggi á Íslandi, sem hann hefur gert frá miðju ári 2021. „Stjórn Blaðamannafélagsins telur þetta lýsandi fyrir vinnubrögð lögreglunnar á Norðurlandi eystra í þessu máli. Þau hafa einkennst af vanþekkingu en ekki síður vanvirðingu gagnvart grundvallarstörfum blaðamanna og hlutverki þeirra, sem og þeirri auknu vernd sem þeir hljóta samkvæmt lögum starfa sinna vegna. Að mati félagsins er rannsóknin í heild tilefnislaus með öllu. Hún er þó til þess gerð að skapa óvissu um lagalegan rétt blaðamanna og ótta innan stéttarinnar um að hver sem er geti hvenær sem er verið kallaður til yfirheyrslu og hlotið réttarstöðu sakbornings fyrir það eitt að fá sendan tölvupóst,“ segir í ályktuninni. Þá segir að Blaðamannafélagið telji óeðlilegt hversu lengi rannsókn málsins hafi tafist, enda hafi ríkissaksóknari sent lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra erindi þar sem óskað er eftir skýringum á töfunum. „Það er íþyngjandi fyrir alla að hafa réttarstöðu sakbornings, en fyrir blaðamenn er það sömuleiðis mikið inngrip inn í tjáningarfrelsi þeirra og störf. Þeim mun mikilvægari almannahagsmuni þarf þar af leiðandi til að réttlæta slíkt inngrip. Stjórn Blaðamannafélagsins krefst þess að lögreglan ljúki rannsókn sinni án frekari tafa.“
Lögreglan Lögreglumál Rannsókn lögreglunnar á Akureyri á blaðamönnum Fjölmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Sjá meira