Svara fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi innan ástralska landsliðsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. október 2021 13:00 Leikmenn ástralska landsliðsins þvertaka fyrir það að kynferðisleg áreitni, einelti og önnur óviðeigandi hegðun líðist innan liðsins. getty/Tim Clayton Sam Kerr og stöllur hennar í ástralska fótboltalandsliðinu hafa svarað fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni og einelti innan liðsins.
Lisa De Vanna, sem er næstleikjahæst og næstmarkahæst í sögu ástralska landsliðsins með 150 leiki og 47 mörk, steig fram á dögunum og greindi frá eitraðri menningu innan landsliðsins. Hún sagðist hafa verið kynferðislega áreitt, lögð í einelti og útskúfuð og svona hegðun væri enn við lýði innan landsliðsins. Núverandi leikmenn ástralska landsliðsins hafa nú svarað fyrir ásakanir De Vannas, bæði sameiginlega og í sitt hvoru lagi. Þær segja leiðinlegt að heyra að henni hafi ekki þótt hún geta stigið fram fyrr og ætla að vinna með ástralska knattspyrnusambandinu, leikmannasamtökunum og öðrum aðilum til að tryggja að leikmenn geti greint frá óviðeigandi hegðun í sinn garð. Kerr, sem er án vafa stærsta stjarna ástralska liðsins og ein besta fótboltakona heims, sagði að landsliðið hafi verið öruggur staður fyrir sig í gegnum tíðina. „Ég hef verið hluti af þessu liði í tólf stórkostleg ár, síðan ég var fimmtán ára og til dagsins í dag. Í gegnum þann tíma hefur landsliðið verið griðarstaður fyrir mig og hjálpað mér að þroskast og verða sú manneskja og sá leikmaður sem ég er í dag. Ég tel mig lánsama að vera hluti af þessum ótrúlega hóp,“ sagði Kerr sem er fyrirliði ástralska landsliðsins. Lisa de Vanna lagði skóna á hilluna í síðasta mánuði. Hún bar fyrrverandi samherjum sínum í ástralska landsliðinu ekki vel söguna.getty/Craig Mercer Aðrir leikmenn ástralska liðsins sem hafa tjáð sig taka í sama streng og Kerr og sagði andrúmsloftið innan liðsins sé gott og þeim líði vel þar. Varafyrirliðinn Steph Catley segist til að mynda hafa varið meiri tíma með félögum sínum í landsliðinu en fjölskyldu sinni og það hafi hjálpað sér á þroskabrautinni. Hún segist alltaf hafa upplifað sig örugga innan landsliðsins og fundist hún tilheyra hópnum. Catley kvaðst vera stolt af því að vera hluti af þessari fjölskyldu eins og hún kallar ástralska liðið. Ástralía endaði í 4. sæti á Ólympíuleikunum í sumar sem er besti árangur liðsins á Ólympíuleikum frá upphafi. Þarnæsta sumar verður Ástralía á heimavelli á HM.
Fótbolti Ástralía Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti Deandre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Enski boltinn Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar Fótbolti „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Íslenski boltinn Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Fleiri fréttir Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Ánægjulegar myndir af Cecilíu Rán Börn Maradona vilja flytja jarðneskar leifar hans Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Di María ákveðinn að snúa ekki aftur heim eftir morðhótanir Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir Leverkusen lætur ekki undan og lagði Roma á útivelli Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Sjá meira