Svíþjóð er í G-riðli með Suður-Afríku, Ítalíu og Argentínu á heimsmeistaramótinu en riðilinn verður leikinn á Nýja Sjálandi í borgunum Auckland, Wellington, Hamilton og Dunedin.
Hluti leikmannahóps Svía er kominn til Wellington þar sem liðið leikur tvo fyrstu leiki sína en liðið ferðast þangað í minni hópum. Leikmenn eins og Magdalena Eriksson, Kosovare Asllani og Fridolina Rolfö eru nú þegar mættar á svæðið en þær gætu þurft að bíða lengur eftir þjálfurum sínum en áætlað var.
Þjálfarar liðsins, þeir Peter Gerhardsson og Magnus Wikman, misstu nefnilega af flugi sínu til Ástralíu. Flugi þeirra frá Stokkhólmi til London seinkaði og þeir misstu því af flugvélinni sem þeir áttu að ferðast með til Sydney.
„Nú er HM lengra í burtu en nokkurn tíman,“ skrifar Wikman í innleggi á Instagram.
„Við þurftum að bóka nýtt flug á Heathrow með einhvern uppdópaðan, syngjandi gaur við hliðina á okkur, það tafði okkur um þrjá tíma í viðbót,“ bætir pirraður Wikman við.
Ógöngur þeirra félaga héldu síðan áfram því flug þeirra til Dubai seinkaði einnig og þá er farangur þeirra týndur. Wikman sagði einnig að allur undirbúningur vegna tímamismunar í Ástralíu og Nýja Sjálandi væri nú til einskis.
„Ég var þar að auki búinn að ná í smáforrit í símann vegna tímamismunarins, sem byrjaði að virka fyrir þremur dögum síðan og segir þér hvenær þú átt að sofa, borða og drekka kaffi út frá þinni rútínu, svo aðlögunin gangi sem best. Það er farið í vaskinn núna,“ skrifar pirraður Wikman.