Gleymdist að geta Hauks í skýrslu þjóðaröryggisráðs Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. mars 2021 22:54 Haukur Hilmarsson. Mynd/Úr safni Nurhaks Stjórnvöld hafa beðist afsökunar vegna villu í skýrslu þjóðaröryggisráðs þar sem fjallað er um hryðjuverkaógn. Í skýrslunni var ranglega tekið fram ekki sé vitað um neina Íslendinga sem hafi tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum í Írak og Sýrlandi.
Þessa fullyrðingu stendur til að leiðrétta í skýrslunni en líkt og kunnugt er er vitað um að minnsta kosti einn Íslending, Hauk Hilmarsson, sem barðist með hersveitum Kúrda gegn ISIS. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjórnarráðinu nú í kvöld en í skýrslu þjóðaröryggisráðs sem vísað er til segir: „Auk þess hafa Íslendingar, einir Norðurlandaþjóða, ekki tekið beinan þátt í aðgerðum bandamanna gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum í Írak og Sýrlandi. Ekki er vitað til þess að einstaklingar búsettir hér á landi hafi haldið til Mið-Austurlanda í því skyni.“ Þessi fullyrðing er leiðrétt í tilkynningu stjórnarráðsins. „Þarna hafa augljóslega orðið mistök við vinnslu skýrslunnar þar sem vitað er að minnsta kosti um einn Íslending, Hauk Hilmarsson, sem barðist með hersveitum Kúrda gegn ISIS, og verða þau leiðrétt. Skýrslan verður þannig leiðrétt prentuð upp að nýju. Þessi leiðu mistök eru hörmuð og beðist er afsökunar á þeim sárindum sem þau hafa valdið,“ segir í tilkynningunni. Talið er að Haukur hafi fallið í átökum í Sýrlandi þar sem hann barðist við hlið Kúrda gegn vígasveitum íslamska ríkisins. Eva Hauksdóttir, móðir Hauks, vekur athygli á frétt Fréttablaðsins í dag þar sem fjallað er um umrædda skýrslu þar sem Hauks er hvergi getið. „Ég vissi alveg að þeir sem ekki þekktu Hauk persónulega myndu fljótt gleyma honum. En ég er pínulítið hissa á því að forsætisráðherra skuli ekkert ráma í hann. Hún hefur líklega aldrei lesið bréfin sem við sendum henni en ég hélt að hún myndi kannski eftir því þegar Beggi bróðir minn mætti á kontorinn hjá henni óboðinn. Hún hefur sjálfsagt haft áhugaverðari verkefnum að sinna,“ skrifar Eva á Facebook.
Mál Hauks Hilmarssonar Utanríkismál Sýrland Varnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent „Galið að fara svona með opinbert fé“ Innlent Hélt að pallurinn væri niðri og „þrumar á brúna og slítur hana niður“ Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira