Karlalið KA í handknattleik hélt til Ungverjalands á dögunum í æfingaferð. Meirihluti hópsins reyndist smitaður af kórónuveirunni við heimkomuna til Íslands.
Akureyri.net greinir frá. Þar kemur fram að hópurinn hafi alls talið 21, þ.e. leikmenn, þjálfara og fararstjóra.
Við komu til Keflavíkur reyndust 13 þeirra smitaðir af veirunni, einn fékk óljósa niðurstöðu, fjórir reyndust neikvæðir og þrír höfðu áður smitast.
Samkvæmt Akureyri.net er meirihluti þeirra sem smitaðist einkennalaus og nokkrir með væg einkenni.