Gera athugasemd við aukið flækjustig fyrir þá sem vilja ganga í hjónaband Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. febrúar 2021 12:28 Siðmennt hefur áhyggjur af því að ákveðnar tillögur í drögum að frumvarpi til breytinga á hjúskaparlögum muni gera einstaklingum erfiðara fyrir að ganga í hjónaband.
Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að könnun hjónavígsluskilyrða fari einungis fram hjá sýslumönnum en í núgildandi lögum eru það löggildir hjónavígslumenn sem hafa til þess heimild. það er prestar, forstöðumen skráðra trúfélaga eða lífsskoðunarfélaga eða umboðsmenn þeirra og borgaralegir vígslumenn. Samkvæmt greinargerð með frumvarpsdrögunum hafa starfsmenn Þjóðskrár Íslands, sem hefur meðal annars það hlutverk að taka á móti og skrá tilkynningar um hjónavígslur, orðið varir við að ágallar séu á útfyllingu eyðublaðsins um tilkynningu hjónavígslu, könnunarvottorð og svaramannavottorð. Ágallarnir séu af ýmsu tagi og því tilefni til að endurskoða ferlið. Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir Straumland, formaður Siðmenntar, segist hafa áhyggjur af því að tilfærsla könnunarinnar til sýslumanna verði hins vegar til þess að flækja ferlið, lengja það og auka kostnað þeirra sem vilja ganga í hjónband. „Við höfum áhyggjur af því að þetta auki flækjustig fyrir hinn almenna borgara sem vill ganga í hjónaband. Og það getur verið jafnvel í bráðatilfellum, þegar fólk er veikt og þarf að ganga hratt í hjónband,“ segir Inga. Eins og er taki tvo til þrjá daga að klára ferlið frá hugmynd til vígslu en með breytingunum gæti það lengst í tvær til þrjár vikur. Þá segir hún að verið sé að gera fólki erfiðara fyrir, til dæmis eigi ekki allir auðvelt með að komast frá á vinnutíma og þá feli breytingarnar í sér 20 prósent kostnaðarauka frá því sem er. „Löggjafinn þarf náttúrulega alltaf að hafa í huga hvað erum við að gera hérna..? Jú, við erum að gera fólki kleyft að ganga í hjónaband; hvernig getum við gert það? Það þarf að vera öruggt en það þarf líka að vera einfalt.“ Inga varpar fram þeirri hugmynd að einfalda ferlið með því að færa verkefnið allt yfir til Þjóðskrár, sem sér nú þegar um að gefa út fæðingar- og hjúskaparvottorð. Umsagnafrestur um frumvarpsdrögin rennur út á morgun. Umsögn Siðmenntar.
Félagsmál Fjölskyldumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Sjá meira