Vann 40 milljónir

Margir velta eflaust fyrir sér hvað maðurinn mun koma til …
Margir velta eflaust fyrir sér hvað maðurinn mun koma til með að gera við þessa fjárhæð. mbl.is/Golli

64 ára karlmaður vann 40 milljónir þegar dregið var í Happdrætti DAS í dag.

Þetta var aðalvinningurinn að þessu sinni á tvöfaldan miða á miðanúmerinu 52011. Vinninghafin er íbúi á Suðurnesjum en ekki hefur tekist að ná sambandi við hann. 

Að auki fóru þrír aðrir vinningar út. Þeir voru allir að upphæð 150 þúsund krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert