„Ég hefði getað farið í ofurlið og orðið meistari en ég vildi gera það hér“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. júlí 2021 09:06 NBA-meistarinn og verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins 2021, Giannis Antetokounmpo. Justin Casterline/Getty Images Giannis Antetokounmpo var eðlilega hátt uppi er hann ræddi við blaðamenn að loknum stórbrotnum leik sínum sem tryggði Milwaukee Bucks sinn fyrsta NBA-meistaratitil í 50 ár. Milwaukee Bucks varð í nótt NBA-meistari í annað skipti í sögu félagsins. Liðið vann 105-98 sigur á Phoenix Suns og vann þar með einvígi liðanna 4-2 eftir að lenda 0-2 undir. Gríska undrið, Giannis Antetokounmpo, átti stórkostlegan leik í nótt. Hann skoraði 50 stig, tók 14 fráköst og hindraði fimm skot. The @Bucks celebrate! #ThatsGame pic.twitter.com/e7fC7XWmRl— NBA (@NBA) July 21, 2021 Hann var á endanum valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins svo eðlilega var hann mjög hátt uppi er hann ræddi við blaðamenn að leik loknum. „Ég vil þakka Milwaukee fyrir að trúa á mig. Ég vil þakka liðsfélögunum, þeir spiluðu hart í hverjum einasta leik. Ég treysti þessu liði. Ég vildi ná þessu hér, í Milwaukee. Ég vildi gera það með þessum gaurum, ég er svo ánægður. Ég er ánægður með að við náðum að vinna.“ "There was a job that had to be finished...This is my city. They trust me. They believe in me. They believe in us." @MotorolaUS | #FearTheDeer pic.twitter.com/joAsLKqgO7— Milwaukee Bucks (@Bucks) July 21, 2021 Khris Middleton og Giannis hafa verið samherjar hjá Bucks undanfarin átta ár. Þeir komu þangað sem óharðnaðir ungir menn en eru í dag NBA-meistarar. „Khris, við gerðum það maður. Ég er glaður glaður maður. Þessi gaur veit ekki hversu mikið hann ýtti mér áfram. Hann ýtti mér hvern dag áfram. Ég er glaður að geta stigið út á völl og spilað hverja einustu mínútu með þessum gaur og liðinu sjálfu en sérstaklega Khris.“ Vonbrigði síðasta tímabils hvöttu liðið áfram Milwaukee steinlá gegn Miami Heat í undanúrslitum Austurdeildarinnar á síðustu leiktíð er keppt var í hinni frægu „sóttvarnarbúbblu“ í Disney World. Þau vonbrigði kveiktu neista hjá Giannis sem rak hann áfram á þessari leiktíð. „Þegar við komum til baka hugsaði ég með mér að þetta væri mín borg. Þau treysta á mig, þau hafa trú á mér og okkur. Meira að segja þegar við töpuðum í fyrra. Ég vildi klára verkefnið hér og vinna meistaratitil. Það er þrjóska hliðin á mér, það er auðvelt að fara annað og vinna titil með einhverjum öðrum. Ég hefði getað farið í ofurlið, gert það sem ég geri og unnið titil en þetta er erfiða leiðin og leiðin sem ég ákvað að fara,“ sagði Giannis um ákvörðun sína að vera áfram í Milwaukee og að vinna loks titil með liðinu. „Trúðu bara á það sem þú ert að gera. Haltu áfram að vinna að markmiðum þínum. Ekki láta neinn segja þér hvað þú getur og getur ekki. Fólk sagði að ég gæti ekki hitt úr vítaskotum, ég hitti úr vítaskotunum í kvöld og er meistari,“ sagði Giannis við mikla gleði viðstaddra en hann hefur verið gagnrýndur fyrir lélega nýtingu á vítalínunni. "People told me I can't make free throws. I made my free throws tonight & I'm a freakin' Champion!" @MotorolaUS | #FearTheDeer pic.twitter.com/q8oOpvm6Xf— Milwaukee Bucks (@Bucks) July 21, 2021 „Ég hitti úr þeim þegar ég átti að hitta úr þeim. Ég er að djóka, en samt ekki. Bara almenn trú og von. Ég vona að ég gefi fólki frá Afríku og Evrópu von, von um að það sé hægt.“ NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Körfubolti NBA Tengdar fréttir Milwaukee Bucks NBA-meistari í fyrsta sinn í 50 ár Milwaukee Bucks er NBA-meistari í körfubolta eftir sjö stiga sigur á Phoenix Suns í nótt, lokatölur 105-98. 21. júlí 2021 07:31 Söguleg frammistaða Giannis sem var valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins Giannis Antetokounmpo skoraði 50 stig er Milwaukee Bucks tryggði sér meistaratitilinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Giannis var valinn verðmætasti leikmaður einvígisins að leik loknum. 21. júlí 2021 08:00 Mest lesið „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Fleiri fréttir LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Sjá meira
Milwaukee Bucks varð í nótt NBA-meistari í annað skipti í sögu félagsins. Liðið vann 105-98 sigur á Phoenix Suns og vann þar með einvígi liðanna 4-2 eftir að lenda 0-2 undir. Gríska undrið, Giannis Antetokounmpo, átti stórkostlegan leik í nótt. Hann skoraði 50 stig, tók 14 fráköst og hindraði fimm skot. The @Bucks celebrate! #ThatsGame pic.twitter.com/e7fC7XWmRl— NBA (@NBA) July 21, 2021 Hann var á endanum valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins svo eðlilega var hann mjög hátt uppi er hann ræddi við blaðamenn að leik loknum. „Ég vil þakka Milwaukee fyrir að trúa á mig. Ég vil þakka liðsfélögunum, þeir spiluðu hart í hverjum einasta leik. Ég treysti þessu liði. Ég vildi ná þessu hér, í Milwaukee. Ég vildi gera það með þessum gaurum, ég er svo ánægður. Ég er ánægður með að við náðum að vinna.“ "There was a job that had to be finished...This is my city. They trust me. They believe in me. They believe in us." @MotorolaUS | #FearTheDeer pic.twitter.com/joAsLKqgO7— Milwaukee Bucks (@Bucks) July 21, 2021 Khris Middleton og Giannis hafa verið samherjar hjá Bucks undanfarin átta ár. Þeir komu þangað sem óharðnaðir ungir menn en eru í dag NBA-meistarar. „Khris, við gerðum það maður. Ég er glaður glaður maður. Þessi gaur veit ekki hversu mikið hann ýtti mér áfram. Hann ýtti mér hvern dag áfram. Ég er glaður að geta stigið út á völl og spilað hverja einustu mínútu með þessum gaur og liðinu sjálfu en sérstaklega Khris.“ Vonbrigði síðasta tímabils hvöttu liðið áfram Milwaukee steinlá gegn Miami Heat í undanúrslitum Austurdeildarinnar á síðustu leiktíð er keppt var í hinni frægu „sóttvarnarbúbblu“ í Disney World. Þau vonbrigði kveiktu neista hjá Giannis sem rak hann áfram á þessari leiktíð. „Þegar við komum til baka hugsaði ég með mér að þetta væri mín borg. Þau treysta á mig, þau hafa trú á mér og okkur. Meira að segja þegar við töpuðum í fyrra. Ég vildi klára verkefnið hér og vinna meistaratitil. Það er þrjóska hliðin á mér, það er auðvelt að fara annað og vinna titil með einhverjum öðrum. Ég hefði getað farið í ofurlið, gert það sem ég geri og unnið titil en þetta er erfiða leiðin og leiðin sem ég ákvað að fara,“ sagði Giannis um ákvörðun sína að vera áfram í Milwaukee og að vinna loks titil með liðinu. „Trúðu bara á það sem þú ert að gera. Haltu áfram að vinna að markmiðum þínum. Ekki láta neinn segja þér hvað þú getur og getur ekki. Fólk sagði að ég gæti ekki hitt úr vítaskotum, ég hitti úr vítaskotunum í kvöld og er meistari,“ sagði Giannis við mikla gleði viðstaddra en hann hefur verið gagnrýndur fyrir lélega nýtingu á vítalínunni. "People told me I can't make free throws. I made my free throws tonight & I'm a freakin' Champion!" @MotorolaUS | #FearTheDeer pic.twitter.com/q8oOpvm6Xf— Milwaukee Bucks (@Bucks) July 21, 2021 „Ég hitti úr þeim þegar ég átti að hitta úr þeim. Ég er að djóka, en samt ekki. Bara almenn trú og von. Ég vona að ég gefi fólki frá Afríku og Evrópu von, von um að það sé hægt.“ NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Körfubolti NBA Tengdar fréttir Milwaukee Bucks NBA-meistari í fyrsta sinn í 50 ár Milwaukee Bucks er NBA-meistari í körfubolta eftir sjö stiga sigur á Phoenix Suns í nótt, lokatölur 105-98. 21. júlí 2021 07:31 Söguleg frammistaða Giannis sem var valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins Giannis Antetokounmpo skoraði 50 stig er Milwaukee Bucks tryggði sér meistaratitilinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Giannis var valinn verðmætasti leikmaður einvígisins að leik loknum. 21. júlí 2021 08:00 Mest lesið „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Fleiri fréttir LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Sjá meira
Milwaukee Bucks NBA-meistari í fyrsta sinn í 50 ár Milwaukee Bucks er NBA-meistari í körfubolta eftir sjö stiga sigur á Phoenix Suns í nótt, lokatölur 105-98. 21. júlí 2021 07:31
Söguleg frammistaða Giannis sem var valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins Giannis Antetokounmpo skoraði 50 stig er Milwaukee Bucks tryggði sér meistaratitilinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Giannis var valinn verðmætasti leikmaður einvígisins að leik loknum. 21. júlí 2021 08:00
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu