Þórir öflugur í naglbítssigri

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson í leik með KR fyrr á tímabilinu.
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson í leik með KR fyrr á tímabilinu. mbl.is/Árni Sæberg

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson lét vel að sér kveða þegar lið hans Landstede Hammers lagði Den Helder með minnsta mun eftir framlengdan leik í úrvalsdeild Hollands og Belgíu í körfuknattleik karla í dag.

Þórir skoraði 18 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar á tæplega 35 mínútum þegar Landstede marði 99:98-sigur eftir lygilega jafnan leik allan tímann.

Landstede er eftir sigurinn í fjórða sæti hollenska hluta deildarinnar með 27 stig eftir 16 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert