„Ekki mikið rúm fyrir miklar tilslakanir“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. október 2020 11:32 Þórólfur Guðnason er sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir ekki mikið svigrúm til tilslakana frá þeim sóttvarnaaðgerðum sem nú eru í gildi og renna út næstkomandi mánudag. Ástæðan sé sú að faraldurinn sé ekki í rénun. Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis um kórónuveirufaraldurinn í dag. Þórólfur kvaðst ætla að skila minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag um áframhaldandi aðgerðir eftir 19. október. „Ég ætla ekki að fara í smáatriðum í hverjar tillögur mínar eru en get þó sagt að ég tel á þessari stundu ekki mikið rúm fyrir miklar tilslakanir þar sem faraldurinn er ekki farinn að minnka. En það sem við reynum að gera núna er að skýra ýmis tilmæli og hafa þau skýrari en þau voru kannski,“ sagði Þórólfur. Venja okkur við að veiran mun vera með okkur næstu mánuði Þá sagði hann að allir þyrftu að vera undir það búnir að það muni taka nokkurn tíma að ráða að niðurlögum þeirrar bylgju sem nú er í gangi. „Og jafnvel þó að okkur takist að sveigja kúrvuna niður þá held ég að við þurfum líka að fara að hugsa um það og venja okkur við að veiran mun sennilega vera með okkur í samfélaginu næstu mánuði eða þar til við fáum gott og öruggt bóluefni. Engu að síður þá vona ég svo sannarlega að okkur takist að uppræta veiruna eins og okkur tókst síðastliðinn vetur en ég tel að vonir til þess séu minni en voru þá,“ sagði Þórólfur. Áfram þyrftum við öll á allri okkar árvekni að halda til að lifa með veirunni auk þess að hafa sem minnst íþyngjandi aðgerðir í gangi á hverjum tíma sem muni duga til þess að halda henni í skefjum. Þá minnti hann einnig á og ítrekaði mikilvægi einstaklingsbundinna smitvarna; að þvo og spritta hendur vel, gæta að fjarlægðarmörkum, passa sig í fjölmenni og nota grímur þar sem það á við.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Íslandsferðin sem breyttist í martröð Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Fleiri fréttir Langt í að þeir nái sér að fullu Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Sjá meira