Valgarð bætti við tveimur gullverðlaunum

Valgarð hampaði í fyrsta sæti í tveimur áhöldum.
Valgarð hampaði í fyrsta sæti í tveimur áhöldum. mbl.is/Óttar Geirsson

Íslandsmótinu í áhaldafimleikum lauk í dag þar sem keppt var til úrslita á einstökum áhöldum. Efstu fimm keppendur á hverju áhaldi úr fjölþrautinni í gær unnu sér inn keppnisrétt. 

Í kvennaflokki vann Íslandsmeistarinn Thelma Aðalsteinsdóttir, úr Gerplu, á slá, hafnaði í öðru á tvíslá og þriðja á gólfi. Margrét Lea Kristinsdóttir fagnaði einnig góðum árangri en hún vann tvær greinar, á tvíslá og gólfi, og hafnaði í öðru sæti á slá. 

Í karlaflokki vann reynsluboltinn og Íslandsmeistarinn Valgarð Reinhardsson tvær greinar, á tvíslá og í svifrá. Ásamt því var hann í öðru sæti á bogahesti. 

Úrslitin í heild sinni má sjá hér að neðan:

Úrslit í kvennaflokki:

Verðlaunahafar á stökki:

  1. sæti: Hildur Maja Guðmundsdóttir, Gerpla
  2. sæti: Agnes Suto, Gerpla
  3. sæti: Natalía Dóra S. Rúnarsdóttir, Björk

Verðlaunahafar á tvíslá:

  1. sæti: Margrét Lea Kristinsdóttir, Björk
  2. sæti: Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla
  3. sæti: Agnes Suto, Gerpla

Verðlaunahafar á slá:

  1. sæti: Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla
  2. sæti: Margrét Lea Kristinsdóttir, Björk
  3. sæti: Hildur Maja Guðmundsdóttir, Gerpla

Verðlaunahafar á gólfi:

  1. sæti: Margrét Lea Kristinsdóttir, Björk
  2. sæti: Hildur Maja Guðmundsdóttir, Gerpla
  3. sæti: Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla

Úrslit í karlaflokki:

Verðlaunahafar á gólfi:

  1. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
  2. sæti: Martin Bjarni Guðmundsson, Gerpla
  3. sæti: Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla

Verðlaunahafar á bogahesti:

  1. sæti: Arnþór Daði Jónasson, Gerpla
  2. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
  3. sæti: Atli Snær Valgeirsson, Gerpla

Verðlaunahafar á hringjum:

  1. sæti: Jón Sigurður Gunnarsson, Ármann
  2. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
  3. sæti: Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla

Verðlaunahafar á stökki:

  1. sæti: Martin Bjarni Guðmundsson, Gerpla
  2. sæti: Atli Snær Valgeirsson, Gerplu
  3. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla

Verðlaunahafar á tvíslá:

  1. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
  2. sæti: Martin Bjarni Guðmundsson, Gerpla
  3. sæti: Sigurður Ari Stefánsson, Gerpla

Verðlaunahafar á svifrá:

  1. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
  2. sæti: Martin Bjarni Guðmundsson, Gerpla
  3. sæti: Sigurður Ari Stefánsson, Gerplu

Sigurvegarar í unglingaflokki: 

Kvenna

  • Stökk: Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla
  • Tvíslá: Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla
  • Slá: Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerpla
  • Gólf: Kristjana Ósk Ólafsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir, Gerpla

Karla

  • Gólf: Ari Freyr Kristinsson, Björk
  • Bogahestur: Ari Freyr Kristinsson, Björk
  • Hringir: Lúkas Ari Ragnarsson, Björk
  • Stökk: Davíð Goði Jóhannsson, Björk
  • Tvíslá: Ari Freyr Kristinsson, Björk
  • Svifrá: Kári Pálmasson, Gerpla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert