Samninganefnd Eflingar stéttarfélags samþykkti í gær á fundi sínum verkfallsboðun sem tekur til starfsstöðva Íslandshótela á félagssvæði Eflingar. Boðunin fer nú í atkvæðagreiðslu meðal þess félagsfólks sem aðgerðirnar taka til. Atkvæðagreiðslan opnar á hádegi á morgun þriðjudag og stendur fram á mánudagskvöld.

„Samninganefnd hefur á fyrri fundum komið sér saman um stærri meginlínur verkfallsaðgerða. Verða aðgerðirnar kynntar og framkvæmdar í nokkrum verkfallsboðunum sem hver fellur undir sína atkvæðagreiðslu. Er verkfallsboðun á Íslandshótelum fyrsta skrefið innan þessarar áætlunar, sem felur í sér stækkandi félagsmannahóp í hverju skrefi,“ segir í tilkynningu Eflingar.

Efling segir að um sé að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem hefjist klukkan 12 á hádegi 7. febrúar 2023.

Umrætt félagsfólk sinni þrifum á herbergjum og í sameiginlegum rýmum, störfum í eldhúsi, við framreiðslu veitinga, þvott og fleira. Vinnustöðvunin tekur til allra starfa undir kjarasamningi Eflingar við SA um vinnu í veitinga- og gistihúsum, á eftirtöldum starfsstöðvum:

  • Fosshotel Reykjavík, Þórunnartún 1, 105 Reykjavík
  • Hotel Reykjavík Grand, Sigtún 28, 105 Reykjavík
  • Hotel Reykjavík Saga, Lækjargata 12, 101 Reykjavík
  • Hotel Reykjavík Centrum, Aðalstræti 16, 101 Reykjavík
  • Fosshotel Baron, Barónsstígur 2-4, 101 Reykjavík
  • Fosshotel Lind, Rauðarárstígur 18, 105 Reykjavík
  • Fosshotel Rauðará, Rauðarárstígur 37, 105 Reykjavík

Samninganefndin segist hafa fundað með fjölmennum hópi starfsfólks Íslandshótela í gærkvöldi, áður en að verkfallsboðunin var samþykkt. Meðlimir samninganefndarinnar hafa jafnframt heimsótt allar starfsstöðvar Íslandshótela og rætt við félagsfólk.

Í síðasta tilboði til SA krafðist samninganefnd Eflingar þess að hótelstörf yrðu hækkuð um launaflokk. Efling segir að töfluhækkun tilboðsins myndi skila almennum hótelstarfsmanni með eins árs starfsaldur rúmlega 55 þúsund króna hækkun grunnlauna, til viðbótar við framfærsluuppbót að upphæð 15 þúsund á mánuði vegna hás framfærslukostnaðar á höfuðborgarsvæðinu.

„Hótelstarfsfólk er með lægst launaða fólki á íslenskum vinnumarkaði, að yfirgnæfandi meirihluta konur af erlendum uppruna. Þessi sami hópur samþykkti sögulegar verkfallsaðgerðir vorið 2019 sem áttu mikinn þátt í að ljúka góðum kjarasamningum þá. Eftir þessu man félagsfólk. Hjá þeim skynja ég sama hugrekki, sömu reisn og sömu staðfestu og árið 2019,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.