Íslendingar verðskuldi tilslakanir

„Það þarf alltaf að gæta að meðalhófi og staðan er …
„Það þarf alltaf að gæta að meðalhófi og staðan er auðvitað sú núna að það eru mjög fá smit í landinu,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir í samtali við mbl.is að hún hafi átt samtöl við lögregluna til þess að fá „betri og skýrari mynd“ á þær kvartanir sem hafa komið fram vegna eftirlits hennar. Þá segir Áslaug að Íslendingar verðskuldi þær tilslakanir sem tilkynntar voru á sóttvarnareglum í dag.  

Áslaug telur slæmt þegar reglugerðir stjórnvalda eru ekki nægilega skýrar en hún bindur vonir við það að sú reglugerð um sóttvarnir sem var birt í dag sé skýrari en fyrri reglugerð. 

Sam­tök fyr­ir­tækja á veit­inga­markaði sendu áskorun á stjórnvöld í morgun þar sem þau óska eftir því að „látið verði af stöðugum lög­regluaðgerðum með til­heyr­andi frétta­flutn­ingi sem gref­ur und­an grein­inni í heild sinni“.

Spurð hvort hún hafi kallað eftir því sérstaklega að lögregla dragi úr eftirliti með veitingastöðum segir Áslaug: 

„Það þarf alltaf að gæta að meðalhófi og staðan er auðvitað sú núna að það eru mjög fá smit í landinu.“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnir hér eftirlitsferð á veitingastað í miðborginni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnir hér eftirlitsferð á veitingastað í miðborginni. Ljósmynd/Lögreglan

Kallar eftir meira samræmi

„Það er slæmt þegar lögreglan skýrir reglur mismunandi eftir landshlutum og annað. Ég hef óskað eftir því að það sé skoðað,“ segir Áslaug. Hún hefur kallað eftir meira samræmi í aðgerðum lögreglu á landsvísu hvað varðar Covid-19. 

„Það er slæmt ef tak­mark­an­ir og reglu­gerðir frá stjórn­völd­um eru ekki nægi­lega skýr­ar svo all­ir skilji þær á sama hátt. Ég hef kallað eft­ir því og ég bind von­ir við  enginn verði í vafa hvaða reglur gilda með nýrri reglu­gerð. En það er alltaf mikilvægt þegar verið er að setja takmarkanir á starfsemi að það liggi skýrt fyrir hverjar þær séu.“

Við getum verið mjög bjartsýn

Í dag voru tilkynntar tilslakanir á sóttvarnareglum vegna Covid-19. Nú mega 50 manns koma saman og 200 í vissum tilvikum. 

„Íslendingar eiga tilslakanir mjög vel skilið eftir það sem á undan er gengið. Við getum verið mjög bjartsýn. Vonandi eru þetta bara fyrstu skrefin í komandi tilslökunum til að nálgast eðlilegt líf,“ segir Áslaug. 

Spurð hvort eðlilegt hefði verið að slaka meira á, í ljósi þess að tíu smit hafa greinst það sem af er febrúarmánuði og einungis tvö smit síðastliðna viku, segir Áslaug:

„Þetta er fyrsta skrefið. Ég vona að það verði síðan fleiri skref því við eigum ekki að venjast um of takmörkunum á líf okkar þegar allt gengur eins vel og það gengur núna.“

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert