Smalakonur í hríðarbyl segja skítkalt en ógeðslega gaman Kristján Már Unnarsson skrifar 22. september 2020 21:56 Dagný Rós Stefánsdóttir, Þjóðólfshaga, og Sif Ólafsdóttir, Einhamri, við Helliskvísl hjá Landmannahelli. Stöð 2/Einar Árnason.
Tugir karla og kvenna eru þessa dagana lengst inni á hálendi við fjárleitir í hríðarbyljum á Landmannaafrétti. Jöfn kynjahlutföll eru í hópi smalamanna þetta haustið en þetta er fertugasta árið sem Kristinn Guðnason í Skarði er fjallkóngur. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Það var á föstudag sem 55 manna hópur smalamanna lagði í fyrstu leitir inn á Landmannaafrétt en hann liggur að Fjallabaki austur af Heklu. Fyrsti smaladagurinn var á laugardag en þá var farið í Jökulgil inn af Landmannalaugum. Fjárleitunum lýkur svo með réttum á fimmtudag í Áfangagili norðan Heklu. Smalamenn reka fjárhóp eftir Landmannaleið vestan við Dómadalsháls. Þarna liggur vegurinn í um sexhundruð metra hæð yfir sjávarmáli.Stöð 2/Einar Árnason. Við skálaþyrpinguna við Landmannahelli, þar sem leitarmenn halda til, mæta okkur alhvít jörð og stillur inn á milli. Eftir hvassviðri og rigningardembur um helgina gekk á með hríðarbyljum í gær, - og svo miklum að fjallkóngurinn taldi farsælast að bregða sér af baki og stýra leitunum með talstöð úr jeppanum. Kristinn hafði vonast eftir góðum degi en élin reyndust „helvíti mikið dimm“. „En auðvitað er snjórinn alltaf góður smali. Það rennur dálítið vel undan okkur núna,“ sagði fjallkóngurinn. Kristinn Guðnason fjallkóngur er jafnan kenndur við Skarð þótt hann búi núna í Árbæjarhjáleigu. Hann fór í sínar fyrstu leitir á Landmannaafrétt árið 1964.Stöð 2/Einar Árnason. Já, við svona aðstæður gengur sauðféð bara sjálft til byggða. Leitarsvæðið er víðast hvar í yfir í sexhundruð metra hæð. Við sáum göngumenn smala fjallið Löðmund, sem er yfir þúsund metra hátt, meðan hríðarbyljir gengu yfir. „Þetta er búið að vera mjög erfitt. Það var mjög hált og erfitt í morgun og er enn,“ sagði Kristinn. „Það er búið að vera vitlaust veður,“ sagði Bragi Guðmundsson, hestamaður í Flagbjarnarholti. Bragi Guðmundsson er úr Garðinum en stundar hestamennsku í Flagbjarnarholti.Stöð 2/Einar Árnason. „Við byrjuðum uppi í Laugum í morgun og eru búnir að fara hér niðureftir öllu. Og erum að koma með fé hérna úr Löðmundi. Ég veit ekki hvernig þetta endar. Það er svo leiðinlegt veður, svo lélegt skyggni,“ sagði Bragi. Það vekur athygli okkar að álíka margar konur og karlar eru þetta haustið í leitunum. Þær Sif Ólafsdóttur og Dagnýju Rós Stefánsdóttur sáum við eltast við rollur utan í snarbröttum Dómadalshálsinum. „Maður hafði eiginlega meiri áhyggjur af því að hesturinn rynni bara niður. Þetta var svo sleipt þarna uppi,“ sagði Sif. „Svo safnast snjórinn svo undir hófana á þeim,“ sagði Dagný Rós. „Þeir eru alveg á stultum, greyin,“ sagði Sif. Þær Sif og Dagný Rós ríða Helliskvísl við Landmannahelli.Stöð 2/Einar Árnason. Þetta er fertugasta haustið sem Kristinn er fjallkóngur en mönnum er til efs að margir hafi stýrt leitum svo lengi. „Það voru einhverjar sögur um það að langafi minn hefði verið 50 ár. Ég byrjaði ungur, rúmlega þrítugur,“ sagði Kristinn, en hann hafði þá verið í göngum frá fjórtán ára aldri. En afhverju er fólk að leggja á sig allt þetta erfiði? „Þetta er æðislegt. Þetta er bara svo gaman. Útrás og allt saman,“ svarar Sif, sem segist vera í húsmæðraorlofi. „Þó að veðrið sé ógeðslegt og að manni sé skítkalt er þetta ógeðslega gaman. Gott að komast samt í hús í hlýjuna,“ svarar Dagný. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Hér má sjá þátt um fjárleitir Gnúpverja fyrir sjö árum:
Landbúnaður Rangárþing ytra Ásahreppur Hestar Réttir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira