Vonar að hann verði á svörtum lista kínverskra stjórnvalda til frambúðar Sylvía Hall og Kristín Ólafsdóttir skrifa 16. apríl 2021 22:44 Jónas Haraldsson segir veru sína á svörtum lista kínverskra stjórnvalda ekki hafa mikil áhrif á sig. Vísir/Einar Lögmaðurinn Jónas Haraldsson segir líklegustu skýringuna á því að hann sé kominn á svartan lista í Kína vera skrif sín í Morgunblaðið. Hann hafi skrifað um ýmis málefni tengd Kína undanfarin sex ár en segist aðallega hissa á því að þeir hafi nennt að standa í þessu, eins og hann orðar það sjálfur. „
Ég hef skrifað mikið af greinum í gegnum árin. Meðal annars um Kínverja, kvartað undan sendiráðshúsinu og allt í kringum það – sóðaskapnum þar og vildi losna við hann. Sem tókst á endanum. Síðan um kínverska ferðamenn og aðallega seinna um kínversku veiruna; Covid-19. Ég var að halda því fram að þetta hefði orðið til hjá þeim fyrir sóðaskap í Wuhan á blautmörkuðunum, kæmi úr leðurblökunum og í matvöruna þar og svo framvegis,“ segir Jónas. Hann segist fyrst hafa frétt af málinu þegar hann fékk símtal frá utanríkisráðuneytinu þar sem hann var boðaður á fund. Hann hafi í fyrstu ekki haft hugmynd um hvað málið varðaði. „Þá fékk ég að vita að það að ég sé kominn á svartan lista og sé þar einn á blaði.“ Klippa: Viðtal við Jónas Haraldsson Hefur engin áhrif „Ég var alveg steinhissa, að ég væri svona merkilegur að þeir nenntu að standa í þessu, en ég tók þessu bara vel. Auðvitað er það alvaran í þessu að það er verið að skipta sér af málfrelsi og tjáningarfrelsi á Íslandi, þetta erlenda stórríki. Það er það alvarlega, það kemur þeim ekkert við,“ segir Jónas. Hann segir veru sína á listanum ekki setja neinar áætlanir í uppnám, enda hafi hann ekki stefnt á ferðalög til Kína. Sjálfur hafi hann ekkert heyrt frá kínverska sendiráðinu eða sendiherranum sjálfum en hann segir þessa aðferð vel þekkta. „Þetta er svona stöðluð aðferð sem er notuð erlendis, þar sem fólk er í viðskiptum við Kínverja, vinna þar eða eru háðir þeim með peninga og annað – bönkunum og þess háttar. En fyrir mig, ekki fer ég til Kína og ekki á ég neina peninga í Kína eða neitt,“ segir hann og bætir við að honum þyki þetta hálf klaufalegt. „Ef þeir vildu koma höggi á mig hefðu þeir getað staðið sig örugglega miklu betur.“ Úr því sem komið er vonar hann að hann fái að vera á listanum. „Fyrst ég er kominn á hann og hafði heilmikið fyrir því.“
Kína Utanríkismál Mannréttindi Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af innanríkismálum Kína Viðskiptaþvinganir Kína gegn íslenskum lögmanni byggja á ákvörðun yfirvalda hér á landi að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Kína vegna mannréttindabrota á Úígúrum þar í landi. Í stóryrtri yfirlýsingu frá sendiráði Kína hér á landi segir að ákvörðun stjórnvalda byggi á engu nema lygum og upplýsingafölsun. 16. apríl 2021 16:27 Íslendingur settur á svartan lista í Kína fyrir gagnrýnin skrif Lögmaðurinn Jónas Haraldsson er á svörtum lista stjórnvalda í Kína, má ekki ferðast til landsins og þá hafa mögulegar eignir hans þar verið frystar. 16. apríl 2021 06:37 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af innanríkismálum Kína Viðskiptaþvinganir Kína gegn íslenskum lögmanni byggja á ákvörðun yfirvalda hér á landi að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Kína vegna mannréttindabrota á Úígúrum þar í landi. Í stóryrtri yfirlýsingu frá sendiráði Kína hér á landi segir að ákvörðun stjórnvalda byggi á engu nema lygum og upplýsingafölsun. 16. apríl 2021 16:27
Íslendingur settur á svartan lista í Kína fyrir gagnrýnin skrif Lögmaðurinn Jónas Haraldsson er á svörtum lista stjórnvalda í Kína, má ekki ferðast til landsins og þá hafa mögulegar eignir hans þar verið frystar. 16. apríl 2021 06:37