Múgurinn réðst inn í þingsalinn um mínútu eftir að Pence var komið út Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. janúar 2021 22:00 Mike Pence. GEtty/Saul Loeb Litlu munaði að múgurinn, sem réðst inn í þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku, hafi náð til Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna. Margir áhlaupamannanna heyrðust hrópa að Pence væri svikari á meðan þeir gengu í átt að þingsalnum.
Samkvæmt nýjum upplýsingum, sem Washington Post greinir frá, liðu fjórtán mínútur frá því að múgurinn gerði fyrstu tilraun til að ráðast inn í þinghúsið þar til öryggisverðir leiddu Pence út úr þingsal og á öruggan stað. Lífferðir Pence leiddu hann að lokum inn í herbergi skammt frá þingsalnum, þar sem Pence hélt til ásamt eiginkonu sinni og dóttur. Um mínútu eftir að Pence var komið úr þingsalnum tókst áhlaupamönnum að ráðast inn á aðra hæð salsins. Samkvæmt heimildamönnum Washington Post var herbergið sem Pence hélt til um þrjátíu metrum frá annarri hæð þingsalsins. Þeir segja að hefðu áhlaupamennirnir komist á staðinn nokkrum sekúndum fyrr hefðu þeir séð Pence hlaupa yfir í herbergið og þá vitað hvar hann væri niðurkominn. Lögreglan hafnaði aðstoð þjóðvarðliðsins Spurningar hafa vaknað um það hvers vegna lífverðir Pence, sem eru meðlimir Bandarísku leyniþjónustunnar (e. Secret Service), fylgdu honum ekki úr þingsal fyrr. Mikil hætta hafi steðjað að varaforsetanum og mikið forgangsmál að koma honum í öruggt skjól. Talsmaður leyniþjónustunnar sagði í samtali við Washington Post að varaforsetinn hafi ekki á neinum tímapunkti verið í lífshættu. Lögregla þingsins hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð hennar vegna áhlaupsins. Gagnrýnendur hafa bent á að löggæsla hafi ekki verið nógu góð, ekki nógu margir lögreglumenn á staðnum og hafa myndbönd og myndir litið dagsins ljós þar sem lögreglumenn þingsins sjást opna dyr fyrir áhlaupsmönnum og stilla sér upp fyrir myndatökur. Þá hafnaði lögregla þingsins boði varnarmálaráðuneytisins um aðstoð þjóðvarðliðs Washington DC við að halda aftur mótmælendum. Mótmælendur höfðu skipulagt mótmælin opinberlega á samfélagsmiðlum og margir sagst ætla að ráðast inn í þinghúsið. Þrátt fyrir það afþakkaði lögreglan aðstoð.
Bandaríkin Árás á bandaríska þinghúsið Tengdar fréttir Búið að handtaka áberandi þátttakendur í óeirðunum Alríkissaksóknarar hafa ákært tvo einstaklinga til viðbótar í tengslum við óeirðirnar í bandaríska þinghúsinu sem fram fóru á miðvikudag. Um er að ræða tvo karlmenn sem vakið hafa mikla athygli fyrir þátt sinn í atburðunum en ljósmyndir af þeim á göngum þinghússins komust fljótt í mikla dreifingu um allan heim. 9. janúar 2021 20:42 „Á þessum tímapunkti hélt ég að ég yrði drepin“ Fjöldi blaðamanna og ljósmyndara var í og við bandaríska þinghúsið á miðvikudag og upplifði þá ótrúlegu atburðarás þegar æstur múgur, stuðningsmenn Donalds Trump fráfarandi Bandaríkjaforseta, réðst inn í húsið. 9. janúar 2021 19:31 Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi handtekinn Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi þegar múgur réðst inn í þinghúsið hefur verið handekinn og ákærður fyrir brot á alríkislögum. 8. janúar 2021 19:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira
Búið að handtaka áberandi þátttakendur í óeirðunum Alríkissaksóknarar hafa ákært tvo einstaklinga til viðbótar í tengslum við óeirðirnar í bandaríska þinghúsinu sem fram fóru á miðvikudag. Um er að ræða tvo karlmenn sem vakið hafa mikla athygli fyrir þátt sinn í atburðunum en ljósmyndir af þeim á göngum þinghússins komust fljótt í mikla dreifingu um allan heim. 9. janúar 2021 20:42
„Á þessum tímapunkti hélt ég að ég yrði drepin“ Fjöldi blaðamanna og ljósmyndara var í og við bandaríska þinghúsið á miðvikudag og upplifði þá ótrúlegu atburðarás þegar æstur múgur, stuðningsmenn Donalds Trump fráfarandi Bandaríkjaforseta, réðst inn í húsið. 9. janúar 2021 19:31
Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi handtekinn Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi þegar múgur réðst inn í þinghúsið hefur verið handekinn og ákærður fyrir brot á alríkislögum. 8. janúar 2021 19:38