Enski boltinn

Dagný hetjan í sigri West Ham gegn Liverpool

Smári Jökull Jónsson skrifar
Dagný skoraði eina mark leiksins í kvöld
Dagný skoraði eina mark leiksins í kvöld Vísir/Getty

Dagný Brynjarsdóttir skoraði sigurmark West Ham í 1-0 sigri liðsins á Liverpool í enska deildarbikarnum í kvöld.

Dagný var í byrjunarliði West Ham í kvöld og skoraði eina mark leiksins á 87.mínútu. West Ham er þar með komið í undanúrslit keppninnar ásamt Manchester City og Chelsea en Arsenal og Aston Villa eiga eftir að spila en leikur þeirra fer fram á morgun.

West Ham situr í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en hafði tapað tveimur leikjum í röð og sigurinn í kvöld því kærkominn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×