Norris sigurvegari í fyrsta skipti

Lando Norris var tolleraður eftir fyrsta sigur sinn í Formúlu …
Lando Norris var tolleraður eftir fyrsta sigur sinn í Formúlu 1 kappakstrinum AFP/RUDY CAREZZEVOLI

Lando Norris, ökumaður McLaren, vann sinn fyrsta Formúlu 1 kappakstur í Miami í Bandaríkjunum í dag. Heimsmeistarinn Max Verstappen þurfti að láta sér nægja annað sætið.

Norris var sjötti í röðinni framan af keppni en innkoma öryggisbílsins varð honum til happs og kom honum fremst í röðina. Verstappen setti Bretann unga undir pressu en Norris stóðst prófið og sigldi að lokum öruggum sigri í höfn. 

Charles Leclerc á Ferrari lenti í 3. sæti og liðsfélagi hans, Carlos Sainz varð fjórði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert