Hreyfihamlaðir sleppa við gjaldtöku í bílastæðahúsum

Handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihömluð sleppa við að greiða gjald í …
Handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihömluð sleppa við að greiða gjald í bílastæðahúsum sem rekin eru á vegum borgarinnar. Ljósmynd/Colourbox

Reykjavíkurborg hefur fallið frá gjaldtöku af handhöfum stæðiskorta fyrir hreyfihömluð í bílastæðahúsum sem rekin eru á vegum borgarinnar.

Fyrst um sinn munu handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihömluð þurfa að hringja í stjórnstöð og gefa upp númer stæðiskorts síns og bílnúmer við komu í bílastæðahús. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Þar sem núverandi aðgangsbúnaður í bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar býður ekki upp á að handhafar stæðiskorta geti með sjálfvirkum hætti notað bifreiðastæði húsanna án greiðslu, verður fyrst um sinn viðhöfð sú tilhögun sem mælt er fyrir um hér að framan.

Þegar er hafin vinna af hálfu Bílastæðasjóðs við tæknilegar útfærslur fyrir bílastæðahús Reykjavíkurborgar til að koma til móts við þessa breyttu framkvæmd til lengri tíma litið. Við þá útfærslu verður haft samráð við aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks.

Nánari upplýsingar um þessa breyttu framkvæmd og fyrirkomulag hennar hafa verið settar upp við inngang bílastæðahúsa Reykjavíkurborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka