Segir Englendingum að gyrða sig í brók Samúel Karl Ólason skrifar 22. september 2020 22:25 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. EPA/Jessica Taylor
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur kallað eftir því að Englendingar taki sig á, sýni aga og fylgi nýjum sóttvarnarreglum. Í sjónvarpsávarpi í kvöld sagði forsætisráðherrann að of margir brytu gegn sóttvarnarreglum, þó flestir fylgi þeim, og haldi það áfram verði gripið til umfangsmikilla ferða- og samkomutakmarkana. Smituðum hefur farið hratt fjölgandi undanfarna daga og jafnvel vikur í Bretlandi. Í gær var viðbúnaðarstig á Bretlandseyjum hækkað og í dag voru hertar reglur opinberaðar í Englandi. Ríkisstjórn Johnson setur ekki sóttvarnarreglur fyrir aðra hluta Bretlands. Meðal þess sem nýju reglurnar fela í sér er að börum og veitingahúsum verður lokað fyrr, fólki er gert að vinna heima ef það hefur töku á. Allir verða að vera með andlitsgrímur í leigubílum og starfsmenn verslana þurfa að bera grímur. Þar að auki verður hætt við að hleypa áhorfendum á stóra íþróttaviðburði og ráðstefnu í næsta mánuði, eins og til stóð. In his address to the nation, Prime Minister Boris Johnson said the country "will get through this winter together", adding that he has "no doubt there are great days ahead".Get more on PM's address to the nation: https://t.co/iFW6JfZ3C0 pic.twitter.com/mmcukOvVvu— SkyNews (@SkyNews) September 22, 2020 Í ávarpi sínu lýsti Johnson heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, sem stærstu krísu heimsins á ævi hans og sagðist sannfærður um að enska þjóðin gæti snúið bökum saman og sigrast á faraldrinum. Varaði hann við mörgum dauðsföllum ef það yrði ekki gert. Johnson sagði að fólk gæti ekki komist upp með að taka eigin áhættu með veiruna. „Hinn sorglegi raunveruleiki þess að vera smitaður af Covid er að vægur hósti eins getur orðið dauði annars.“ Sömuleiðis væri ekki hægt að einangra eldri borgara og láta veiruna smita aðra sem eru í minni hættu, eins og lagt hafi verið til. Hún myndi án efa ná einnig til eldri borgara og valda þeim miklum skaða. Johnson sagðist einnig persónulega mótfallinn takmörkunum eins og þeim sem hann hefur sett á. Því fyrr sem hægt væri að fella þær úr gildi, því betra. Því þær ógni ekki bara störfum og afkomu fólks heldur einnig þeirri nánd sem maðurinn reiði sig á. Hann sagði alla Englendinga þurfa að snúa bökum saman og ef það gengi ekki eftir gæti hann gengið lengra og sett á frekari takmarkanir.
Bretland England Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Hækka viðbúnaðarstigið í Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að hækka viðbúnaðarstig í landinu vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita. 21. september 2020 22:35 Vara við veldisvexti í fjölda smitaðra í Bretlandi Lýðheilsusérfræðingar bresku ríkisstjórnarinnar vöruðu við því að vatnaskil hafi orðið í kórónuveirufaraldurinn á neikvæðan hátt í dag. 21. september 2020 12:16 Faraldurinn í miklum vexti víða um heim 20. september 2020 13:00 Hátt í tveggja milljóna sekt fyrir ítrekuð brot Íbúar í Bretlandi sem ítrekað hlíta ekki sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við smitaðan einstakling geta átt von á sektum sem nema allt að tíu þúsund pundum 19. september 2020 22:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira
Hækka viðbúnaðarstigið í Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að hækka viðbúnaðarstig í landinu vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita. 21. september 2020 22:35
Vara við veldisvexti í fjölda smitaðra í Bretlandi Lýðheilsusérfræðingar bresku ríkisstjórnarinnar vöruðu við því að vatnaskil hafi orðið í kórónuveirufaraldurinn á neikvæðan hátt í dag. 21. september 2020 12:16
Hátt í tveggja milljóna sekt fyrir ítrekuð brot Íbúar í Bretlandi sem ítrekað hlíta ekki sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við smitaðan einstakling geta átt von á sektum sem nema allt að tíu þúsund pundum 19. september 2020 22:57