NBA-liðið Brooklyn Nets tilkynnti í dag að ein skærasta stjarna deildarinnar, Kyrie Irving, muni hvort æfa né leika með liðinu á meðan hann er óbólusettur.
Deildin og leikmannasamtök NBA komust að samkomulagi á dögunum um að óbólusettir leikmenn sem missa af leikjum vegna svæðisbundinna reglna í tengslum við bólusetningar muni þurfa að taka á sig launalækkanir fyrir hvern leik sem þeir missa af. Irving er einn þeirra sem ekki vill láta bólusetja sig eins og fram hefur komið.
Lög og reglur geta verið mismunandi í ríkjunum sem mynda Bandaríkin og því var spurning um hvort Kyrie Irving myndi geta spilað einhverja útileiki með Brooklyn þótt hann megi ekki spila í New York.
Það verður ekki reynt samkvæmt tilkynningunni frá Brooklyn Nets. Sean Marks framkvæmdastjóri liðsins er skrifaður fyrir tilkynningunni og segir að Irving verði hvort með liðinu á æfingum né í leikjum ef hann getur á annað borð ekki tekið fullan þátt í verkefnum liðsins.
Hann ítrekar að Irving hafi rétt á því að ákveða sjálfur hvort hann þiggi bólusetningu eða ekki og félagið virði það.