Juventus í fallsæti og fær alltaf á sig mark Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2021 16:01 Paulo Dybala og félagar eru í tómu veseni. Getty/Nderim Kaceli Það er ýmislegt sögulegt að eiga sér stað hjá ítalska stórveldinu Juventus. Allt á mjög slæman hátt.
Juventus hefur, á sinn mælikvarða, byrjað leiktíðina á Ítalíu skelfilega og er í fallsæti eftir fjórar umferðir, með tvö stig. Það hefur þrisvar sinnum gerst í sögu félagsins að Juventus vinni ekki neinn af fyrstu fjórum deildarleikjum sínum – síðast árið 1960. Samt hefur Juventus komist yfir í þremur leikjanna; 2-0 gegn Udinese, 1-0 gegn Napoli og 1-0 gegn AC Milan í gær, en alltaf misst niður forskotið og jafnvel tapað. Þrátt fyrir endurkomu þjálfarans Massimiliano Allegri, sem vann ítalska meistaratitilinn öll fimm árin sín hjá félaginu, 2014-2019, þá hefur varnarleikurinn verið vandamál, frekar en brottför Cristianos Ronaldo. Það er framhald af lokum síðasta tímabils og hefur Juventus nú fengið á sig mark í hverjum einasta af síðustu átján leikjum sínum. Juventus er raunar að ganga í gegnum lengstu hrinu leikja án þess að halda markinu hreinu, af öllum liðunum í fimm bestu deildum Evrópu. Og það með Evrópumeistaramiðvarðaparið Giorgio Chiellini og Leonardo Bonucci í hjarta varnarinnar, og hollenska landsliðsmiðvörðinn Matthijs de Ligt einnig til taks. Allegri tók þó skýrt fram eftir jafnteflið við Milan í gær að þeir Chiellini og Bonucci hefðu átt frábæran leik og að sökin væri ekki þeirra. Juventus mætir næst Spezia á miðvikudagskvöld og freistar þess að byrja að rétta úr kútnum en liðið er átta stigum á eftir toppliðunum tveimur frá Mílanó. Napoli getur náð tveggja stiga forystu á toppnum í kvöld með sigri á Udinese.
Ítalski boltinn Tengdar fréttir Juventus enn í leit að fyrsta sigrinum eftir jafntefli gegn AC Milan Juventus og AC Milan gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Juventus hefur ekki enn unnið leik þegar fjórar umferðir eru búnar af deildinni. 19. september 2021 20:40 Mest lesið „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Íslenski boltinn Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Fótbolti Lést í fyrsta bardaga sínum Sport Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti Fernandes íhugar að stökkva frá borði Enski boltinn „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn „Búinn að vera tilfinningarússibani“ Íslenski boltinn Fury eldri blóðugur í aðdraganda sögulegs bardaga Sport „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Körfubolti Fleiri fréttir Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Lygileg toppbarátta í Danmörku Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Barcelona upp í annað sætið Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Sungu nafn Arnórs hástöfum Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ „Förum glaðir úr Lautinni“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Sjá meira
Juventus enn í leit að fyrsta sigrinum eftir jafntefli gegn AC Milan Juventus og AC Milan gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Juventus hefur ekki enn unnið leik þegar fjórar umferðir eru búnar af deildinni. 19. september 2021 20:40