Áfram hætta á bylgju hjá yngra fólki Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 10. maí 2021 11:51 Þrátt fyrir talsverðar tilslakanir er fólk beðið um að gæta fyllstu varúðar. Áfram eigi eftir að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar. Vísir/Vilhelm Fimmtíu manns mega nú koma saman eftir að tilslakanir í sóttvarnaaðgerðum tóku gildi á miðnætti. Aðgerðir eru hins vegar harðar í Skagafirði eftir hópsýkingu sem kom upp í sveitarfélaginu um helgina. Sóttvarnalæknir biður fólk áfram um að gæta sín þrátt fyrir tilslakanir, enda hafi ungt fólk ekki fengið bólusetningu og því sé hætta á útbreiddum faraldri hjá þeirri kynslóð.
Almennar fjöldatakmarkanir fara úr tuttugu í fimmtíu manns. Þá mega líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaðir taka á móti 75 prósent af leyfilegum hámarksfjölda. Að auki lengist leyfilegur opnunartími veitingastaða úr klukkan 21 í klukkan 22, en heimilt verður að sitja inni til klukkan 23. „Auðvitað er þetta alltaf spurning hvernig muni tiltakast og hvað muni gerast, en ég hef fulla trú á því að menn kunni þetta orðið og það er það sem máli skiptir, hvernig fólk hegðar sér áfram og ég hef fulla trú á því. Með vaxandi útbreiðslu bólusetningar líka þá held ég að við eigum að geta slakað á jafnhliða,” segir Þórólfur Guðnason. Síðast máttu fimmtíu manns koma saman í febrúar - en um mánuði síðar voru fjöldatakmarkanir færðar niður í tíu manns. Þórólfur segir að þó vel gangi í bólusetningum sé áfram hætta á frekari faraldri. „Ef við pössum okkur ekki þá getum við fengið bylgju. Við erum ekki búin að fá það mikla útbreiðslu bólusetninga að við gætum fengið bylgju hjá yngra fólki eða fólki á miðjum aldri. Sem betur fer erum við búin að ná að bólusetja eldri aldurshópana og erum að vinna með fólk með undirliggjandi sjúkdóma. En við getum fengið útbreiddan faraldur hjá yngra fólki sem veiran svo sannarlega getur verið alvarleg líka hjá því fólki eins og dæmin sýna frá öðrum löndum.” Fimm greindust með kórónuveiruna í gær og þar af var einn utan sóttkvíar. Alls eru 248 manns í sóttkví, langflestir á Skagafirði þar sem hópsýking blossaði upp og þar hafa hertar aðgerðir tekið gildi, þar sem skólum og íþróttamiðstöðvum hefur verið lokað Þórólfur segir að af þeim fimm sem greindust í gær séu tveir búsettir á Norðurlandi. Metvika var í bólusetningum í síðustu viku þegar um fjörutíu þúsund manns fengu bóluefni, og hefur nú um 48 prósent þjóðarinnar verið bólusett. Um tólf þúsund manns frá bóluefni frá Pfizer í þessari viku; fimm þúsund fá fyrri bólusetningu og sjö þúsund þá seinni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira