Sport

Norðurlandameistarar í karate

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Öflugur hópur
Öflugur hópur Karatesamband Íslands

Landslið Íslands í karate sótti tvo Norðurlandameistaratitla og fern önnur verðlaun á Norðurlandamótinu sem fram fór í Stavanger í Noregi um helgina.

Hugi Halldórsson varð Norðurlandameistari í kumite 16–17 ára pilta, -76 kg flokki. Í fyrstu umferð mætti hann Ragnari Audse frá Eistlandi og vann hann örugglega, 4–0. Í undanúrslitum barðist Hugi við Lettann Aleksandars Obernihins. Eftir snarpa og skemmtilega viðureign bar hann sigur úr býtum, 5–4, og tryggði sér sæti í úrslitum. Þar mætti hann öðrum eistneskum landsliðsmanni, Karl Erik Meltsas. Ekki hafði hann roð við Huga frekar en landi sinn. Lokatölur urðu 4–0 og Norðurlandameistaratitill í höfn.

Um er að ræða fyrstu gullverðlaun Íslands í einstaklingskeppni síðan árið 2010 og aðeins þriðja skiptið í sögunni sem Íslendingur vinnur gull í einstaklingsgrein.

Kvennasveit Íslands  í hópkata átti gott mót og stóð að lokum uppi með gullið. Þær unnu öruggan sigur á liði Finna í úrslitum. Liðið skipa þær Freyja Stígsdóttir, Móey María Sigþórsdóttir McClure og Kristrún Bára Guðjónsdóttir. Ísland hefur einu sinni áður unnið Norðurlandameistaratitil í liðakeppni eða árið 2012.

Karlalið Íslands í hópkata varð svo aðeins 0,06 stigum (af 30 mögulegum) frá því að bæta þriðja gullinu í safnið. Liðið, skipað Huga Halldórssyni, Birni Breka Halldórssyni og Nökkva Benediktssyni, hlaut 22,8 stig fyrir framkvæmd sína á kata Kururunfa gegn 22,86 stigum Norðmanna í úrslitum og stóð uppi með silfur.

Þrír ungir og efnilegir keppendur í kumite unnu einnig bronsverðlaun í sínum flokkum, þau Alexander Rósant Harðarson í 14–15 ára flokki -63 kg, Davíð Steinn Einarsson í 14–15 ára flokki -57 kg og Ronja Halldórsdóttir í 16–17 ára flokki -59 kg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×