Lögregla rannsakar sex andlát og mál fimm annarra sjúklinga á HSS Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. nóvember 2021 10:32 Lögregla rannsakar nú sex andlát auk mála fimm annarra sjúklinga, þar sem grunur leikur á um að þeir hafi verið settir í lífslokameðferð að nauðsynjalausu. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú andlát sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hún telur mögulegt að hafi borið að með saknæmum hætti. Mál fimm annarra sjúklinga eru einnig í skoðun.
Frá þessu greinir RÚV og vísar í úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, þar sem fallist var á kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum um að tveir dómkvaddir matsmenn verði fengnir til að svara spurningum í tengslum við andlát eins sjúklings. Að því er fram kemur í úrskurðinum hafa tveir starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja réttarstöðu sakbornings; læknir og annar heilbrigðisstarfsmaður. Landsréttur staðfesti úrskurðinn í vikunni en honum segir meðal annars: „Lögreglustjóri segir að ætla megi að ef ætluð brot sönnuðust, myndu þau geta varðað fangelsisrefsingu. Af þessum sökum skipti miklu fyrir áframhaldandi rannsókn málsins að dómkvaddir verði matsmenn til að framkvæma sérfræðilega skoðun/rannsókn líkt og greini í kröfugerð svo unnt sé aðrannsaka málið nánar og upplýsa það. Þá telji lögreglustjóri jafnframt að ríkir almanna- og einkahagsmunir krefjist þess að mál þetta upplýsist.“ Þá kemur einnig fram að matsmennirnir eigi að leggja mat á dánarorsök umrædds sjúklings, hvort forsendur voru fyrir hendi til að hefja lífslokameðferð, hvort verklagi við hana var fylgt, hvort lyfjagjöf hafi verið eðlileg og hvort rétt hafi verið staðið að sjúkdómsgreiningu sjúklingsins. Báðir sakborningarnir eru sagðir hafa lagst gegn matsbeiðninni, meðal annars með tilliti til þess tjóns sem málið gæti valdið þeim. Í frétt RÚV segir að lögregla hafi undir höndum tvö álit óháðra sérfræðinga en annar þeirra hafi komist að þeirri niðurstöðu að læknirinn hafi sýnt alvarlega bresti í faglegri þekkingu sem hefði ógnað öryggi sjúklinga en hinn að vanræksla hefði átt sér stað í veitingu heilbrigðisþjónustu. Frétt RÚV.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Læknamistök á HSS Lögreglumál Heilbrigðismál Reykjanesbær Tengdar fréttir Þrír starfsmenn HSS kærðir fyrir vanrækslu Þrír starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa verið kærðir til lögreglu vegna meintrar vanrækslu, sem sögð er hafa leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Landlæknir telur að um röð mistaka og hirðuleysi hafi verið að ræða, ekki síst vegna ómeðhöndlaðra sýkinga, sem sé möguleg dánarorsök. 23. ágúst 2021 18:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Sjá meira
Þrír starfsmenn HSS kærðir fyrir vanrækslu Þrír starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa verið kærðir til lögreglu vegna meintrar vanrækslu, sem sögð er hafa leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Landlæknir telur að um röð mistaka og hirðuleysi hafi verið að ræða, ekki síst vegna ómeðhöndlaðra sýkinga, sem sé möguleg dánarorsök. 23. ágúst 2021 18:35