Sex úrskurðaðir í bann

Kjartan Henry Finnbogason leikur ekki með KR gegn Fylki.
Kjartan Henry Finnbogason leikur ekki með KR gegn Fylki. Eggert Jóhannesson

Aganefnd KSÍ úrskurðaði í dag sex leikmenn Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í eins leiks bann fyrir að safna fjórum gulum spjöldum í deildinni í sumar.

Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, leikur ekki með liðinu gegn Fylki á mánudaginn kemur. Orri Sveinn Stefánsson verður ekki í vörn Fylkis af sömu ástæðu.

FH leikur án Péturs Viðarssonar gegn ÍA á sunnudaginn á meðan Jón Gísli Eyland Gíslason verður ekki með Skagamönnum.

Þá verður KA án Dusan Brkovic gegn Leikni á sunnudag og Víkingur úr Reykjavík án Erlings Agnarssonar gegn Stjörnunni á sunnudaginn kemur.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert