Gul viðvörun á Austfjörðum vegna mikillar rigningar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. janúar 2021 07:03 Þessi mynd er tekin þann 19. desember, daginn eftir að gríðarstór aurskriða féll á Seyðisfjörð. Í kjölfarið var allur bærinn rýmdur. Vísir/Egill Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði vegna talsverðrar eða mikillar rigningar. Viðvörunin tekur gildi klukkan eitt í nótt og stendur til klukkan þrjú síðdegis á morgun, laugardag. Þá á að draga úr úrkomuákefð.
Á viðvörunarvef Veðurstofunnar segir að í ljósi aðstæðna sé Seyðisfjörður viðkvæmur fyrir rigningu og Eskifjörður að einhverju leyti einnig en eins og flestum ætti að vera í fersku minni féllu gríðarstórar aurskriður á Seyðisfirði í desember með tilheyrandi eignatjóni. Aurskriðurnar féllu eftir miklar rigningar í bænum og var úrkomumet slegið. Á fimm daga tímabili, frá 14. til 18. desember mældist rigningin 570 mm en aldrei áður hafði sést svo áköf úrkoma á fimm dögum hér á landi. Meðalúrkoma í Reykjavík á heilu ári er til samanburðar 860 mm. Í spá og viðvörun Veðurstofunnar nú er ekki gert ráð fyrir eins mikilli rigningu á sólarhring og var í desember. Í viðvöruninni segir að spáð sé 50 mm uppsafnaðri úrkomu á Seyðisfirði á þeim tíma sem viðvörunin gildir. Úrkoman byrji mögulega sem slydda fyrsta klukkutímann en síðan hlýnar heldur: „[…] megnið af tímanum slydda í yfir 200 m hæð yfir sjávarmáli og snjókoma yfir 300 m. Hlýnar svo eftir hádegi á laugardag og fer snjólína þá væntanlega upp í 800-900 m. Á Eskifirði er spáð uppsafnaðri úrkomu um 35 mm meðan viðvörunin gildir og slyddu- og snjólína þar um 50-100 m hærri en á Seyðisfirði,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu: Sunnan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Gengur í austan 13-20 sunnanlands eftir hádegi með rigningu eða slyddu. Mun hægari vindur og lengst af þurrt á norðurhelmingi landsins. Norðaustan 10-18 í nótt og í fyrramálið. Talsverð rigning austantil, en annars víða slydda eða rigning með köflum, en snjókoma til fjalla. Hægari um tíma síðdegis á morgun og dregur úr úrkomu fyrir austan. Norðvestan 10-18 annað kvöld og slydda eða snjókoma, en úrkomulítið sunnanlands. Hiti 0 til 5 stig, en hiti kringum frostmark fyrir norðan. Á laugardag: Norðaustan 8-15 m/s, en vestlægari á sunnanverðu landinu. Víða dálítil rigning eða slydda á láglendi, en snjókoma til fjalla. Talsverð rigning austanlands. Hiti 0 til 5 stig. Ásunnudag: Norðan 10-18 m/s, en hægari vindur austanlands. Slydda eða snjókoma á norðanverðu landinu, en úrkomulítið sunnantil. Hiti kringum frostmark. Á mánudag og þriðjudag: Ákveðin norðanátt með snjókomu eða éljum á norðurhelmingi landsins, en þurrt að mestu og bjart með köflum sunnan heiða. Víða vægt frost.
Veður Múlaþing Aurskriður á Seyðisfirði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira