Baráttan við faraldurinn langdregnari en vonir voru bundnar við Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. september 2020 09:02 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands telur stóru viðskiptabankana þrjá, Íslandsbanka, Landsbankann og Arion banka, búa yfir miklum viðnámsþrótti til að takast á við afleiðingar kórónuveirufaraldursins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu nefndarinnar sem birt var nú laust fyrir klukkan 9 en samhliða kemur út rit bankans um fjármálastöðugleika. Í yfirlýsingunni segir að baráttan við farsóttina sé langdregnari en vonir voru bundnar við. Það auki óvissu og hafi neikvæð áhrif á útlánasöfn fjármálafyrirtækja. Því sé mikilvægt að fjármálafyrirtæki vinni markvisst að endurskipulagningu útlána og nýti það svigrúm sem aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda hafi skapað til að styðja við heimili og fyrirtæki: „Eiginfjár- og lausafjárstaða stóru bankanna þriggja er sterk. Aðgerðir Seðlabankans hafa rýmkað verulega aðgengi þeirra að lausu fé og vaxtaálag á erlendum lánsfjármörkuðum hefur lækkað. Bankarnir hafa því greiðan aðgang að lausu fé bæði í krónum og erlendum gjaldmiðlum. Þeir eiga því að búa yfir miklum viðnámsþrótti til að takast á við afleiðingar farsóttarinnar,“ segir í yfirlýsingunni. Þá skapi lágvaxtaumhverfi nýjar áskoranir fyrir starfsemi lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja. Lífeyrissjóðir séu ráðandi þátttakendur á innlendum fjármálamarkaði og því sé þörf á að skoða frekar umgjörð og áhættu tengda þeim. „Fjármálastöðugleikanefnd skal ársfjórðungslega ákveða gildi á sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki. Í samræmi við yfirlýsingu nefndarinnar frá 18. mars sl. hefur nefndin ákveðið að halda aukanum óbreyttum næstu 6 mánuði,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir jafnframt að slökun á taumhaldi peningastefnunnar hafi stutt við fjármálastöðugleika við núverandi aðstæður. Nefndin ítrekar að hún sé reiðubúin að beita þeim tækjum sem hún hafi yfir að ráð til að varðveita fjármálastöðugleika hér á landi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Seðlabankinn Efnahagsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira