Arnar: Ómetanlegt fyrir okkur að hafa þessar eldri drottningar með Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. október 2021 19:06 Arnar Pétursson hrósaði íslenska liðinu eftir sigurinn á Serbíu. vísir/Jónína Guðbjörg Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var að vonum sáttur eftir sigurinn á Serbíu í undankeppni EM 2022 í dag.
Ísland steinlá fyrir Svíþjóð, 30-17, í fyrsta leik sínum í undankeppninni á fimmtudaginn en frammistaðan í dag var allt önnur og betri en þá. „Eftir erfiðan leik á móti Svíum, sem eru bara í svolítið öðrum klassa, er ég ánægðastur með að við skyldum koma með þessum krafti inn í leikinn,“ sagði Arnar við Vísi eftir leikinn. Ísland skoraði fyrstu tvö mörkin og var með frumkvæðið nær allan tímann. „Það hefði alveg verið hægt að koma pínu litlar í sér inn í þennan leik en þær gerðu það ekki. Ég er stoltur af þessum ungu leikmönnum sem eru að spila sína fyrstu leiki og svo gáfu þessar eldri drottningar sig í þetta og miðluðu af reynslu sinni. Þá er ég að tala um Rut [Jónsdóttur], Hildigunni [Einarsdóttur], Sunnu [Jónsdóttur] og Unni [Ómarsdóttur]. Það er ómetanlegt fyrir okkur að hafa þessa stelpur með.“ Íslensku leikmennirnir fagna í leikslok.vísir/Jónína Guðbjörg Ísland komst fjórum mörkum yfir, 13-9, í byrjun seinni hálfleiks en Serbía svaraði með 6-1 kafla og komst yfir, 14-15, í fyrsta og eina sinn í leiknum. Arnar var sáttur með að íslenska liðið hafi ekki lagt árar í bát á meðan þessum erfiða kafla stóð. „Ég er ofboðslega ánægður með það. Auðvitað hafði ég smá áhyggjur af því að liðið ætti erfitt með að svara þessu áhlaupi en þær fá stórt hrós fyrir að koma til baka úr því og svara fyrir sig,“ sagði Arnar. „Við erum á ákveðinni vegferð og erum að reyna að lengja góðu kaflana. Og hann var góður kaflinn sem við getum tekið margt gott úr í dag og byggt á. Það var ofboðslega gott.“ Íslenska vörnin var í góðum gír í dag og Serbía skoraði aðeins 21 mark. Arnar vill að íslensku leikmennirnir séu ágengir í vörninni. „Varnarleikurinn hélt mjög vel. Við erum að reyna að færa okkur aðeins framar á völlinn og það gekk ótrúlega vel. Það fer mikil orka í þetta en við verðum að ná tökum á þessu. Við verðum að koma framarlega á móti liðum sem hafa svona skyttur. Það þýðir ekkert að sitja á sex metrunum,“ sagði Arnar. Ragnheiður Júlíusdóttir hleypir af.vísir/Jónína Guðbjörg Ragnheiður Júlíusdóttir var í stóru hlutverki í íslensku sókninni og tók tuttugu skot í leiknum. Sjö þeirra fóru inn. Arnar segir að það hafi ekki endilega verið uppleggið að Ragnheiður myndi klára svona margar sóknir en kvaðst sáttur með frammistöðu hennar. „Það þróaðist þannig. Ég hefði alveg viljað fá fleiri skot frá Theu [Imani Sturludóttur] líka. Hún er frábær leikmaður og við eigum hana aðeins inni í skotunum. En hún spilaði mjög vel, hreyfði sig vel og spilaði vörnina frábærlega,“ sagði Arnar. „Ragnheiður tók skotin og ég er búin að segja við hana að ég skipti henni út af ef ég er ósáttur. Í dag var þetta flott og hún tók af skarið. Ég er ánægður með hana.“
Handbolti EM kvenna í handbolta 2022 Tengdar fréttir Elín Jóna: Skulduðum áhorfendum að vinna þennan leik Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði fjórtán skot (fjörutíu prósent) þegar Ísland sigraði Serbíu, 23-21, í undankeppni EM 2022 í kvöld. 10. október 2021 18:43 Umfjöllun: Ísland - Serbía 23-21 | Frábær sigur á Serbum Ísland vann tveggja marka sigur á Serbíu, 23-21, í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2022. 10. október 2021 18:20 Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: FH - Afturelding | Úrslitin fara af stað Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Sjá meira
Elín Jóna: Skulduðum áhorfendum að vinna þennan leik Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði fjórtán skot (fjörutíu prósent) þegar Ísland sigraði Serbíu, 23-21, í undankeppni EM 2022 í kvöld. 10. október 2021 18:43
Umfjöllun: Ísland - Serbía 23-21 | Frábær sigur á Serbum Ísland vann tveggja marka sigur á Serbíu, 23-21, í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2022. 10. október 2021 18:20